Mjög vonsviknar með að hafa ekki unnið þær síðast Óskar Ófeigur Jónssson í Kalmar skrifar 11. júlí 2013 14:45 Sara Björk á æfingu með landsliðinu í gær. Mynd/ÓskarÓ
Það hefur mikið breyst hjá Söru Björk Gunnarsdóttur á þeim fjórum árum síðan að íslenska landsliðið tók þátt í EM í fyrsta sinn. Sara Björk var þá að stíga sín fyrstu skref með landsliðinu en er núna kominn í algjört lykilhlutverk í liðinu. „Ég var 18 ára þegar ég tók þátt í síðasta stórmóti. Ég hef þroskast mikið sem leikmaður á þessum tíma. Ég var að spila á Íslandi þá en er núna á þriðja ári í atvinnumennsku í Svíþjóð. Ég hef bætt mig mikið sem leikmaður og vona að ég geti gert meira fyrir liðið heldur en á síðasta móti. Mér finnst ég líka vera í meira ábyrgðarhlutverki og bera meiri ábyrgð á liðinu. Ég hlakka bara til að spila," sagði Sara á blaðamannafundi í gær. Sara er varafyrirliði liðsins og hefur borið fyrirliðabandið í forföllum Katrínar Jónsdóttur. „Það er heiður að fá að taka við fyrirliðabandinu þegar Katrín hefur ekki verið með. Siggi treysti mér fyrir þessu hlutverki og ég er rosalega stolt af því að hafa fengið það," segir Sara. Íslenska liðið tapaði naumlega fyrir Noregi þegar liðin mættust síðast í hreinum úrslitaleik um sigur í riðlinum í undankeppni EM. Íslenska liðið komst síðan á EM í gegnum umspilið. „Þetta var úrslitaleikur, við spiluðum vel og vorum mjög vonsviknar með að hafa ekki unnið þann leik. Við komumst áfram á EM og það er það sem skiptir máli. Svo er bara að spila aftur við þær og þá erum við ekkert að hugsa um fyrri úrslit," segir Sara. Framundan er leikur á móti Noregi í Kalmar í kvöld. „Ég er mjög spennt og það er mikil spenna komin í hópinn. Við getum eiginlega ekki beðið eftir því að fá að spila," segir Sara og hún telur að liðinu gangi betur að stjórna spennnustiginu í ár heldur en í Finnlandi fyrir fjórum árum. „Það var fyrsta stórmótið okkar og við höfum lært mikið af því. Við erum með marga leikmenn sem spiluðu á síðasta móti og allar eru reynslunni ríkari eftir það mót," segir Sara en hvað með leikinn í kvöld? „Þetta verður mjög harður leikur. Það er mikilvægt fyrir okkur að fá þrjú stig úr leiknum og bæði lið þurfa á þremur stigum að halda. Þetta verður hörkuleikur. Það er mjög mikilvægt að byrja mótið og þrjú stig myndu hjálpa okkur rosalega að ná okkar markmiði."
Mest lesið Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fluga hjálpaði kúlunni ofan í holuna Golf Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Íslenski boltinn Fyrsti homminn í landsliði neyðist til að hætta Fótbolti „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Íslenski boltinn „Eitt mesta ofbeldi í sögu fótboltans“ Fótbolti Fengu milljóna sekt eftir ólætin á Íslandi Fótbolti Langri bið Sveindísar lauk með sætum sigri á meisturunum Fótbolti Hvað er mikilvægast að hafa í huga fyrir Reykjavíkurmaraþonið? Sport Hvetur fólk til að brjóta reglu og velja Haaland Enski boltinn Fleiri fréttir „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ „Það er æfing á morgun“ „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Uppgjörið: Breiðablik - Tindastóll 5-0 | Blikar fóru illa með laskaða Stóla Kane með þrennu er Bayern valtaði yfir Leipzig Framlengir við City: „Ég elska Manchester“ Palmer meiddist í upphitun og ekki með gegn West Ham Rodri og Foden klárir í slaginn Viljum ekki leikmenn sem vilja ekki Spurs Ósáttur við aðgerðaleysið: Dreg fram skóna sjálfur „Eitt mesta ofbeldi í sögu fótboltans“ Ófriðarbál hjá Forest og stjórinn mögulega rekinn Hvetur fólk til að brjóta reglu og velja Haaland Sjáðu mörkin: Borðtennis í Garðabæ og tveggja mánaða bið tók enda á Akureyri Sjáðu endurkomu Breiðabliks gegn Virtus og markið sem VAR dæmdi af „Erum við virkilega í fituprósentum 2025?“ „Spark í rassinn til að gíra okkur upp í þetta“ „Ég vil hundrað prósent sjá hann aftur í Newcastle-treyju“ Fyrsti homminn í landsliði neyðist til að hætta „Stór og merkilegur viðburður fyrir okkur“ Fengu milljóna sekt eftir ólætin á Íslandi Grét í viku þegar Arsenal vildi hann ekki en sama félag borgar nú marga milljarða Langri bið Sveindísar lauk með sætum sigri á meisturunum Meiddist alvarlega hjá sjúkraþjálfaranum Grófu sig undir girðingu og stálu milljónum frá félaginu Sjá meira