Vissi ekki hvenær leikurinn byrjaði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. júlí 2013 12:15 Elísabet Gunnarsdóttir. Mynd/Pjetur „
Ha? Ég ætla aðeins að kíkja á þetta svo ég mæti á réttum tíma," segir Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstad. Elísabet var í viðtali í morgþættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun. Þar sagði hún meðal annars að ef Íslandi tækist að landa fjórum stigum í leikjunum gegn Noregi og Hollandi þá væri um frábæran árangur að ræða. Þá var hún nokkuð sigurviss fyrir leikinn gegn Noregi í dag. Viðtalið má heyra í spilaranum að ofan. Umsjónarmenn þáttarins hlógu hins vegar mikið þegar í ljós kom að Elísabet, sem mun lýsa leik Íslands og Noregs í dag á Rúv, hafði ekki hugmynd um klukkan hvað leikurinn byrjaði. Heimir Karlsson sagði réttilega að leikurinn væri klukkan 16 að íslenskum tíma en Elísabet kom af fjöllum. „Ég hef alltaf haldið að Ísland væri að spila klukkan hálf tíu að íslenskum tíma og fyrri leikurinn væri klukkan sex. Ég verð að skoða þetta. Ég held að þið séuð að rugla," sagði Elísabet hlæjandi. Elísabet lá í sólbaði og hlustaði á ljúfa tónlist þegar hún fékk símtalið í morgun. Hún grínaðist með það að hún hefði verið pirruð með að síminn hefði hringt þar sem hún hafði það náðugst í 22 stig hita. „Ég ætla hvort eð er að sjá báða leikina þannig að það skiptir ekki máli," sagði Elísabet. Svo allur vafi sé tekinn af þá hefst viðureign Íslands og Noregs á Evrópumeistaramótinu klukkan 16. Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Mest lesið Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Íslenski boltinn „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Fótbolti „Það er æfing á morgun“ Íslenski boltinn Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ Enski boltinn „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn á sviðið Sport „Eitt mesta ofbeldi í sögu fótboltans“ Fótbolti Sló Íslandsmetið í sleggjukasti Sport Fleiri fréttir „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ „Það er æfing á morgun“ „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Uppgjörið: Breiðablik - Tindastóll 5-0 | Blikar fóru illa með laskaða Stóla Kane með þrennu er Bayern valtaði yfir Leipzig Framlengir við City: „Ég elska Manchester“ Palmer meiddist í upphitun og ekki með gegn West Ham Rodri og Foden klárir í slaginn Viljum ekki leikmenn sem vilja ekki Spurs Ósáttur við aðgerðaleysið: Dreg fram skóna sjálfur „Eitt mesta ofbeldi í sögu fótboltans“ Ófriðarbál hjá Forest og stjórinn mögulega rekinn Hvetur fólk til að brjóta reglu og velja Haaland Sjáðu mörkin: Borðtennis í Garðabæ og tveggja mánaða bið tók enda á Akureyri Sjáðu endurkomu Breiðabliks gegn Virtus og markið sem VAR dæmdi af „Erum við virkilega í fituprósentum 2025?“ „Spark í rassinn til að gíra okkur upp í þetta“ „Ég vil hundrað prósent sjá hann aftur í Newcastle-treyju“ Fyrsti homminn í landsliði neyðist til að hætta „Stór og merkilegur viðburður fyrir okkur“ Fengu milljóna sekt eftir ólætin á Íslandi Grét í viku þegar Arsenal vildi hann ekki en sama félag borgar nú marga milljarða Langri bið Sveindísar lauk með sætum sigri á meisturunum Meiddist alvarlega hjá sjúkraþjálfaranum Grófu sig undir girðingu og stálu milljónum frá félaginu Sjá meira