Umfjöllun: Ísland - Noregur 1-1 | Fyrsta stigið á EM Óskar Ófeigur Jónsson í Kalmar skrifar 11. júlí 2013 13:38 Fanndís í baráttu við Toril Akerhaugen í leiknum í dag. Nordic Photos / AFP
Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði íslenska kvennalandsliðinu 1-1 jafntefli í fyrsta leik sínum á Evrópumeistaramótinu í Svíþjóð. Hún skoraði af öryggi úr vítaspyrnu fjórum mínútum fyrir leikslok. Það stefndi í að hlutirnir væru að falla með norska liðinu í jöfnum leik eins og undankeppninni síðasta haust en íslensku stelpurnar gáfust ekki upp og náðu frábærum lokakafla í leiknum. Íslenska liðið tapaði öllum þremur leikjum sínum á EM í Finnlandi árið 2009 þegar stelpurnar stigu söguleg skref á sínu fyrsta stórmóti. Nú fjórum árum síðar eru þær strax búnar að stíga næsta skref og gera betur en þá. Þetta jafntefli er því sigur fyrir íslenska kvennalandsliðið. Norska liðið skoraði eina mark fyrri hálfleiksleiksins eftir varnarmistök um hann miðjan og fékk framan af leik hættulegustu færin. Íslenska liðið var hinsvegar alltaf inn í leiknum og var að reyna að byggja upp sóknir en eins og stundum áður þá vantaði herslumuninn að liðið skapaði sér alvöru færi. Norðmennirnir spiluðu afar skynsamlega og tókst vel að loka svæðum sérstaklega eftir að þær fengu markið sitt á silfurfati frá íslensku varnarlínunni. Leikskipulag norska liðsins virtist vera að ganga og það voru þær sem sköpuðu sér bestu færin í leiknum þrátt fyrir laglega spilakafla íslensku stelpnanna. Það þurfti margt að falla með íslenska liðinu í þessum leik og mark Kristine Hegland á 26. mínútu var eitthvað sem íslenska liðið varð helst að sleppa við. Stelpurnar létu ekki mótlætið buga sig og íslenska liðinu óx ásmeginn þegar leið á seinni hálfleikinn og fór að fá sín færi. Sara Björk Gunnarsdóttir komst í tvö góð færi en varnarmenn norska liðsins komust fyrir skotin hennar. Margrét Lára Viðarsdóttir, Harpa Þorsteinsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir fengu allar skotfæri í og við teiginn en náðu ekki nógu góðum skotum. Sara Björk Gunnarsdóttir hætti aldrei og það var hún sem breytti sögunni fyrir íslenska kvennalandsliðið með því að fá víti fjórum mínútum fyrir leikslok. Margrét Lára Viðarsdóttir steig óhrædd á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Norska liðið var reyndar nálægt því að skora í tvígang í uppbótartíma leiksins. Rétt fyrir leikslok fór boltinn af varnarmanni íslenska liðsins og í slánna en íslensku stelpurnar sluppu með skrekkinn og fögnuðu sögulegu stigi í leikslok.
Mest lesið Óhugnanlegt atvik á Brúnni Enski boltinn Uppgjörið: FH - Valur 37-36 | FH knúði fram oddaleik í maraþonleik Handbolti Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Körfubolti Umfjöllun: Valur 85-79 Grindavík | Einvígið fer í oddaleik Körfubolti Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Enski boltinn Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Körfubolti Mamma fór inn á völlinn og sparkaði í þrettán ára strák Sport Saka skaut Arsenal áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Fótbolti Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Enski boltinn Fleiri fréttir Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Sjáðu markið sem skaut Arsenal áfram í úrslitaleikinn Uppgjörið: Fram - Þróttur 0-3 | Þróttur áfram á sigurbraut en Fram ennþá án stiga Saka skaut Arsenal áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Mögnuð tilþrif Stefáns á báðum endum og efsta deild markmiðið Lífið leikur við Lindu sem lofaði að svara á sænsku næst Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Segja að Alfreð og félagar ættu að ráða Solskjær Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Segist hafa skipt um hótel til að spara Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Fylkir kláraði Vestra í seinni hálfleik Titillinn að renna úr greipum Elíasar? Lið Tómasar vann gífurlega mikilvægan sigur Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Barcelona getur tryggt sér titilinn gegn Real Madrid Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Reiddist og felldi son Robinho Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sagan segir að KR verði meistari Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti Sjá meira