Grímurnar birtast á götunum í Japan 23. mars 2013 06:00 Fólk á ferð Sumir segja engu líkara en annar hver maður gangi um með grímu. fréttablaðið/AP
Japanar eru líklega duglegri en flestar aðrar þjóðir við að setja upp grímur. Algengast er þetta á vorin þegar frjókornin fara á kreik. En Japanar nota líka grímur til að verjast smiti. Og mengun sem þeir segja einkum koma frá Kína. „Það er engu líkara en annar hver maður sem fer út fyrir hússins dyr gangi um með grímu þessa dagana,“ segir Masahiko Haneda, kaupsýslumaður í höfuðborginni Tókýó. Flestir reyndar setja upp grímur til að verjast frjókornum vegna ofnæmis, og þetta árið er ástandið óvenju slæmt. Frjókornamælingar sýna að í andrúmsloftinu eru fimm sinnum fleiri frjókorn nú en var á sama tíma í fyrra. Ástæðan er sögð vera sú að síðasta sumar var óvenju heitt, auk þess sem óvænt hitabylgja hefur gert vart við sig nú í þessum mánuði. Þessi mikli hiti núna gerir það að verkum að bæði sedrusviður og hinn japanski hinoki-grátviður losa samtímis frjókorn út í andrúmsloftið. Með árunum hefur grímutískan breyst. Þær eru ekki lengur eingöngu hvítar og skurðstofulegar, heldur í öllum regnbogans litum og hannaðar eftir sveiflukenndum kröfum tískunnar. Sumar eru með ilmefnum. Grímuframleiðendur eru farnir að velta jafnvirði 34 milljarða króna á ári hverju. Öflugasta fyrirtækið í bransanum, Kowa Co., segist ætla að fimmfalda framleiðsluna þetta árið. Grímur sjást reyndar á fólki í Japan allt árið. Margir setja þær á sig um leið og þeir fá kvef. Þannig komast þeir hjá því að hósta eða hnerra framan í annað fólk, til dæmis í þrengslunum í járnbrautarlestum eða á vinnustöðum, þar sem oft er einnig þröng á þingi. Þá setur fullkomlega heilbrigt fólk iðulega upp grímuna til að forðast smit frá þeim sem hnerra og hósta bullandi kvefaðir en grímulausir á almannafæri. Grímur eru ódýrar í Japan og kannski þess vegna svona vinsælar. Þær þjóna líka mjög skýrum tilgangi og virðast virka vel. „Þær eru ódýrar og þær virka. Það virðist henta mjög vel hugsunarhætti margra Japana,“ segir Shigeharu Fujeda, ofnæmisfræðingur við Háskólann í Fukui. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Fleiri fréttir Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Sjá meira