Ísraelsher lætur sprengjum rigna á höfuðborg Sýrlands Sara McMahon skrifar 6. maí 2013 07:00 Ísraelsher gerði loftárás á Damaskus aðfaranótt sunnudags. Ísraelsk stjórnvöld segja tilgang árásarinnar hafa verið að eyða stýriflaug sem flytja átti til Líbanon. Myndin er fengin úr fréttatíma Ugarit-fréttastofunnar. Fréttablaðið/AP
Ísraelsher gerði loftárás á Damaskus, höfuðborg Sýrlands, aðfaranótt sunnudags. Sýrlenskum og ísraelskum stjórnvöldum ber ekki saman um hvert skotmark árásarinnar hafi verið. Samkvæmt ísraelskum stjórnvöldum var markmið árásarinnar að eyða stýriflaug sem verið var að flytja frá Íran til Líbanon og var ætluð Hezbollah-samtökunum. Sýrlenskir ríkisfjölmiðlar halda því fram að eldflaugarnar hafi hæft þrjár herstöðvar og rannsóknarstofu í grennd við Damaskus og að mannfall hafi orðið. Þetta er önnur loftárásin sem Ísrael gerir á Sýrland síðustu daga og sú þriðja frá áramótum. Í bréfi sem utanríkisráðuneyti Sýrlands sendi Sameinuðu þjóðunum kemur fram að þarlend stjórvöld fordæmi árásina og telji hana svívirðilega. Þar segir jafnframt að mikil eyðilegging hafi orðið í höfuðborginni við árásina og að með henni hafi ísraelsk stjórnvöld lagt sýrlenskum hryðjuverkamönnum lið, en þar er átt við her uppreisnarmanna sem hafa barist við sýrlensk stjórvöld í nærri tvö ár. Aðgerðasinnar í Sýrlandi segja ísraelsku eldflaugarnar hafa hæft skotmark sitt því mikil sprenging hafi orðið við árásina og að mikill appelsínugulur blossi hafi blossað upp í kjölfar hennar. Sýrlenskur blaðamaður sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC, að það væri engu líkara en að jarðskjálfti hefði skekið borgina. Frá því að uppreisnin í Sýrlandi hófst í mars árið 2011 hafa ísraelsk stjórnvöld ítrekað lýst því yfir að þau ætli ekki að blanda sér í átökin. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur þó áður komið því á framfæri að leiki grunur á um að verið sé að flytja vopn ætluð Hezbollah um Sýrland verði gripið til aðgerða líkt og nú hafi komið til. Á meðan segjast sýrlensk stjórnvöld, undir stjórn Bashar Assad forseta, líta svo á að með árásunum sé Ísraelsher að veita uppreisnarmönnum lið. Með þessu eru sýrlensk stjórnvöld talin reyna að grafa undan trúverðugleika uppreisnarmanna. Haldi árásirnar áfram stendur stjórn Assads þó frammi fyrir mikilli valþröng; aðgerðaleysi að hálfu stjórnvalda mætti túlka sem veikleika en gjaldi þau líku líkt er hætta á enn frekari árásum frá öflugum her Ísraels.
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira