Krafðir greiðslu vegna áhorfs á barnaklám Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. febrúar 2013 16:37 Myndin tengist fréttinni ekki. Nordicphotos/Getty
Spænsk yfirvöld í samvinnu við Evrópulögregluna, Europol, hafa handtekið ellefu manns úr Austur-Evrópu vegna tölvuglæps. Hinir grunuðu komu hugbúnaði fyrir á tölvum sem sökuðu notendur þeirra um að hafa horft á ólöglegt efni, þar með talið barnaklám. Fólki var sagt að greiða sekt áður en það gæti haldið áfram að nota tölvuna. Í yfirlýsingu frá Europol kemur fram að tölvuglæpamennirnir hafi fengið notendur til þess að greiða 100 evrur, jafnvirði 15 þúsund króna, sem sekt við glæp sínum. Eftir að notendur greiddu sektina gátu þrjótarnir stolið gögnum og upplýsingum af tölvum þeirra. Fyrst varð vart við vírusinn í maí 2011 en yfir 1200 tilfelli hafa verið tilkynnt á Spáni. Ekki liggja fyrir tölur frá öðrum löndum. Rannsóknarlögreglumenn hjá Europol segja að hugbúnaðinum hafi verið komið fyrir á tugum þúsunda tölva um allan heim. Þrjótarnir áttu von á að hafa um eina milljón evra, jafnvirði 171 milljóna króna, af notendum árlega. Europol telur að 27 ára gamall Rússi sé höfuðpaurinn í glæpagenginu en alls hafa ellefu verið handteknir. Sá rússneski var handtekinn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og bíður þess að verða framseldur til Spánar. Sex aðrir Rússar, tveir Úkraínumenn og tveir Georgíumenn voru einnig handteknir. Nánar um málið á fréttavef BBC.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira