Risastórt verkefni NASA 6. apríl 2013 09:50
Vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar munu á næstu árum freista þess að snara nokkur hundruð tonna smástirni og draga í átt að jörðu. Markmiðið er að rýna í efnasamsetningu slíkra steina og um leið auðvelda mannkyni að verjast mögulegum loftsteinaárekstri í framtíðinni. Það var bandaríski þingmaðurinn Bill Nelson sem greindi frá þessu í samtali við fjölmiðla vestanhafs í gær. Nelson, sem gegnir formennsku í vísinda- og geimferðanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins, sagði að hundrað milljónum dala úr fjárlögum fyrir næsta ár yrði ráðstafað í verkefnið. Þetta er þó aðeins brotabrot af áætluðum raunkostnaði. NASA vonast til að ýta verkefninu úr vör árið tvö þúsund og nítján. Í stuttu máli er verklýsingin þessi. Fjarstýrt geimskip mun nálgast fimm hundruð og fimmtíu tonna smástirni og snara. Geimfarið mun síða nota sólvinda til að fleyta smástirninu áleiðis í átt að jörðinni og á endanum leggja því á sporbraut um tunglið. Árið tvö þúsund tuttugu og eitt munu síðan fjórir geimfarar lenda á smástirninu og hefja rannsóknarstörf. Fyrst af öllu verður rýnt í efnasamsetningu steinsins. Markmið verkefnisins eru margþætt en meðal annars vonast NASA til að hefja prófanir á tækjabúnaði og tækni sem á endanum mun flytja geimfara til Mars. Þá munu rannsóknir á smástirninu einnig varpa ljósi á það hvernig mannkyn gæti varist mögulegum loftsteinaárekstri í framtíðinni.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Fleiri fréttir Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Sjá meira