Höfum ekki efni á að hafa Carroll á bekknum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. apríl 2013 12:34
Brendan Rodgers hefur gefið í skyn að Andy Carroll eigi ekki afturkvæmt í lið Liverpool en líklegast verður að teljast að hann verði seldur í sumar. Carroll er nú lánsmaður hjá West Ham en hann kom til Liverpool frá Newcastle á sínum tíma fyrir 35 milljónir punda. Hann átti þó erfitt með að festa sig í sessi hjá Liverpool. „Okkar lið er byggt upp í kringum Luis Suarez og hæfileika hans. Hver leikmaður hefur sinn stíl og svo er spurning hvernig hann passar í liðið. Suarez hefur blómstrað í því hlutverki sem við höfum gefið honum í vetur," sagði Rodgers við enska fjölmiðla. „Það þarf því að leika á ákveðinn hátt til að ná því besta úr leikmönnum. Það er enginn vafi á því að Andy hefur sína hæfileika eins og sést á þeim mörkum sem hann hefur skorað eftir föst leikatriði með West Ham." „Hann kom hingað fyrir himinháa upphæð og það var ekki honum að kenna. En félagið hefur ekki efni á að vera með slíkan leikmann á bekknum, miðað við kaupverð hans og laun." „Hann hefur sjálfsagt ekki spilað jafn mikið eins og hann sjálfur eða West Ham hafa kosið en verðmiðinn á honum er hár og við verðum að taka tillit til þess. Við skulum sjá hvað gerist í sumar."
Enski boltinn Mest lesið Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Sigurbjörn í sérflokki og tveir þjálfarar toppa formann KSÍ á tekjulistanum Sport „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Íslenski boltinn Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Fótbolti Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Alfreð hrósað fyrir metkaup á einum heitasta leikmanni norsku deildarinnar Fótbolti Sjáðu samskipti dómarans í úrslitaleik HM: Bað Messi um að róa Paredes niður Fótbolti Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Íslenski boltinn Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Enski boltinn Fleiri fréttir „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Sjá meira