Fataframleiðsla til betri vegar? 17. maí 2013 07:00 1.127 manns létust þegar byggingin við Rana-torg hrundi í lok apríl. Byggingin var ólögleg og ekki ætluð til verksmiðjunotkunar. fréttablaðið/ap
Segja má að tvö skref hafi verið tekin í átt að bættum kjörum og aðstæðum verkafólks í fataverksmiðjum í Bangladess í vikunni. Byggingarhrunið mannskæða við Rana-torg í Dhaka þann 24. apríl beindi sjónum heimsins að oft ömurlegum aðstæðum verkafólks sem starfar í stærsta útflutningsiðnaði landsins; fataframleiðslu sem að mestu leyti fer til Vesturlanda. H&M hóf skriðu undirskrifta Fjölmörg stór fatafyrirtæki skrifuðu í vikunni undir bindandi samkomulag um bættar aðstæður í fataverksmiðjum í landinu. Verkalýðsfélög höfðu um nokkurt skeið reynt að fá vestrænu fatarisana til þess að skrifa undir samkomulag af þessu tagi en fram að slysinu höfðu aðeins tvö fyrirtæki skrifað undir. Þeirra á meðal var móðurfyrirtæki Calvin Klein og Tommy Hilfiger. Þrýstingur á fyrirtækin að grípa til aðgerða jókst mikið í kjölfar slyssins og á mánudag tilkynnti H&M að fyrirtækið hygðist skrifa undir samkomulagið. Sænski fatarisinn er stærsti kaupandi fata frá Bangladess og hafði ákvörðunar hans verið beðið. Í kjölfarið fylgdu C&A, Primark, Tesco og móðurfyrirtæki Zöru og þegar fresturinn til þátttöku rann út á miðvikudag hafði fjöldi fyrirtækja skrifað undir. Bandarísku fyrirtækin taka ekki þátt Fyrirtækin skuldbinda sig til að taka þátt í kostnaði við að bæta brunavarnir og öryggismál í verksmiðjunum. Samkomulagið er víðfeðmt og bindandi samkvæmt lögum næstu fimm árin. Markmiðið er að byggja upp fataiðnað „þar sem enginn starfsmaður þarf að óttast eldsvoða, hrun bygginga eða önnur slys sem hægt væri að koma í veg fyrir með skynsamlegum heilbrigðis- og öryggisráðstöfunum,“ segir í samkomulaginu. Ef fataverksmiðjurnar taka ekki þátt eða uppfylla ekki kröfur þurfa fyrirtækin að veita þeim áminningu og ef ekkert batnar þurfa þau að hætta að versla við verksmiðjurnar. Mörg bandarísk stórfyrirtæki taka ekki þátt í samningnum, heldur segjast ætla að gera umbætur sjálf með öðrum hætti. Walmart, sem er stærsti smásali heims, er þar fremst í flokki. Stjórnvöld lofa líka bótum – en hafa gert það áður Bent hefur verið á að jafnvel þótt alþjóðlegu fyrirtækin grípi til þessara aðgerða dugi það ekki til að gera aðstæður verkafólks mannsæmandi. Vinnulöggjöfin í landinu er brotakennd og lágmarkslaun þau lægstu í heiminum. Hitt skrefið sem stigið var í vikunni var loforð ríkisstjórna landsins um breytingar á vinnulöggjöfinni til þess að bæta réttindi verkafólks. Meðal þess sem kveður á um í lögunum er réttur fólks til að mynda frjáls verkalýðsfélög án samþykkis eigenda verksmiðjanna og hækkun lágmarkslauna. Gagnrýnendur hafa þó bent á að stjórnvöld í landinu hafa áður lofað umbótum í þessum iðnaði án þess að við það hafi verið staðið. Þá hefur verið gagnrýnt að í tillögunum er ekki tekið fyrir það að eigendur verksmiðja reki hreinlega þá starfsmenn sem taka þátt í verkalýðsstörfum. Samkomulaginu fagnað víða Alþjóðavinnumálastofnunin fagnar samkomulaginu og frumkvæði stéttarfélaga og fatafyrirtækja. „Nauðsyn bráðra umbóta í öryggismálum krefst samstöðu,“ segir meðal annars í tilkynningu stofnunarinnar, sem kom að gerð samkomulagsins. Hún segist tilbúin til að styðja við áætlunina og ætlar að halda áfram að ýta á að stjórnvöld og eigendur verksmiðjanna standi við þær umbætur sem lofað hefur verið, meðal annars að bæta vinnulöggjöfina í landinu svo hún standist alþjóðleg viðmið. Fleiri hafa fagnað samkomulaginu. „Núna er þetta besti möguleikinn til þess að breyta aðstæðum til hins betra í Bangladess,“ segir Dara O"Rourke, prófessor við Berkeley-háskóla. Hún segir fjarveru fyrirtækja eins og Walmart æpandi. „Þeir ættu að nota markaðsaðstöðu sína ásamt öðrum smásölum til þess að hafa jákvæð áhrif á iðnaðinn í Bangladess.“ Björgunarlið og hermenn leita í rústum verksmiðju í Kampong Speu-héraði í Víetnam, rétt vestan við höfuðborgina Pnom Pen, eftir að þak skóverksmiðju hrundi 16. maí. Að minnsta kosti tveir verkamenn létust.NORDICPHOTOS/AFP Ekki bara slæmt ástand í BangladessHluti af skóverksmiðju í Kambódíu hrundi á miðvikudag með þeim afleiðingum að minnst tveir létust og sjö slösuðust. Verksmiðjan framleiðir skó fyrir íþróttamerkið Asics, sem hefur meðal annars notið vinsælda hér á landi. Slysið er áminning um að ekki er nóg að bæta aðstæður verkafólks í Bangladess heldur eru föt og skór framleidd við slæmar aðstæður víða annars staðar. „Fyrirtæki í öðrum löndum reyna líka að halda verðinu niðri með því að spara í öryggi starfsmanna,“ segir Phil Robertson hjá Mannréttindasamtökunum Human Rights Watch. Alþjóðavinnumálastofnunin gaf út skýrslu um ástandið í Kambódíu í síðasta mánuði og kallaði eftir því að athygli yrði beint að brotum í öryggismálum í fataiðnaðinum í landinu. Í skýrslunni kom meðal annars fram að hiti í verksmiðjum væri allt of mikill, brotið væri á frítökurétti og starfsfólk hefði ekki nægan aðgang að drykkjarvatni.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira