New York rústir einar í myndbandi Norður-Kóreu 6. febrúar 2013 11:45
Málgagn norður-kóreskra stjórnvalda hefur birt myndband sem sýnir New York-borg sem rústir einar. Þar má sjá ungan mann sem dreymir um að gerast geimfari, í bakgrunni ómar lag Michael Jacksons, „We Are the World." Um miðbik myndbandsins má síðan sjá stórborgina New York í ljósum logum. Stjórnvöld í Norður-Kóreu hótuðu á dögunum að sprengja kjarnavopn í tilraunaskyni og lýstu því yfir að slíkri tilraun yrði stefnt til höfuðs erkifjendum sínum í Bandaríkjunum. Myndbandið, sem birtist á veraldarvefnum fyrr í þessari viku, hefur vakið gríðarlega athygli. Upphaflega mátti nálgast það á myndbandavefnum YouTube en bandaríska tölvuleikjafyrirtækið Activision fór seinna fram á að myndbandið yrði fjarlægt af vefsíðunni. Ástæðan er sú að áróðursmenn í Norður-Kóreu notuðu myndefni úr tölvuleiknum Call of Duty þar sem New York-borg hafði orðið fyrir árás hryðjuverkamanna. Ekki liggur fyrir af hverju Norður-Kóreumenn ákváðu að nota smell Michael Jacksons. Nokkrir hafa bent á að titill lagsins, „We Are the World" sé skírskotun í heimsvaldastefnu Bandaríkjanna.Hægt er að nálgast myndbandið hér fyrir ofan.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira