Tveir fórust í þyrluslysinu í London 16. janúar 2013 10:15
Lögreglan í London hefur staðfest að tveir einstaklingar hafi látið lífið þegar þyrla hrapaði til jarðar í Vauxhall hverfinu í morgun. Annar hinna látnu var flugmaður þyrlunnar en hann var einn í henni.Tveimur mönnum var ekið á sjúkrahús en öðrum þeirra tókst slökkviliðsmönnum að bjarga út úr brennandi bíl sínum á slysstaðnum. Þyrlan hrapaði til jarðar um átta leytið í morgun eftir að hún rakst á byggingarkrana í hverfinu. Fjölmennt lið lögreglu og slökkviliðs ásamt fjórum sjúkrabílum var sent á staðinn enda logaði töluverður eldur í þyrlubrakinu og mikinn reyk lagði af honum. Í frétt um málið á vefsíðu BBC segir að um tíma hafi eldur logað glatt í götunni sem þyrlan skall niður í og að nærliggjandi bygging sem og kyrrstæðir bílar hafi orðið fyrir brunaskemmdum. Kraninn sem þyrlan skall á liggi á hliðinni. Nærliggjandi járnbrautarstöð og götum var lokað og skapaði það mikið umferðaröngþveiti í hverfinu um stund enda margir á leið til vinnu á þessum tíma.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Sjá meira