Stóru hægri og vinstri flokkarnir á Ítalíu saman í stjórn Þorgils Jónsson skrifar 25. apríl 2013 06:00 Enrico Letta hefur verið falið að mynda samsteypustjórn stóru flokkanna á Ítalíu. Þar hefur stjórnarkreppa ríkt í um tvo mánuði. „
Þetta er eini möguleikinn!“ sagði Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, þegar hann færði Enrico Letta umboð til þess að mynda ríkisstjórn og binda þannig enda á tveggja mánaða stjórnarkreppu og hefja vinnu við að koma Ítalíu á rétta leið. Letta er varaformaður Lýðræðisflokksins, sem er vinstra megin við miðju á hinu pólitíska litrófi, en í umboði Napolitanos felst að Letta myndi samsteypustjórn með hægriflokki Silvios Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra. Vinstri menn hafa meirihluta í neðri deild þingsins, en hægri menn í öldungadeildinni. Forsetinn hafði áður fengið vilyrði stóru flokkanna fyrir því að þeir styddu stjórn undir forustu Letta. Forsætisráðherrann verðandi sagði að hann áttaði sig á þeirri ábyrgð sem honum væri falin. Forgangsverkefnið sé að takast á við hina „gríðarlegu og óviðunandi“ erfiðleika sem Ítalía, sem er þriðja stærsta efnahagsveldi Evrópusambandsins, hefur glímt við síðustu misseri.Enrico Letta, sem fengið hefur umboð til að mynda samsteypustjórn stóru flokkanna á Ítalíu, ræddi við fjölmiðlamenn í Quirinale-forsetahöllinni á Ítalíu í gær. Nordicphotos/AFP„Staðan er mjög erfið og fordæmislaus þar sem getur brugðið til beggja vona,“ sagði Letta og bætti við að næsta verkefni á forgangsröðinni væru pólitískar umbætur þar sem stjórnmálastéttin hefði glatað allri tiltrú almennings. Meðal annars hyggur hann á fækkun þingmanna og breytingar á kosningalöggjöfinni. Ítalíu hefur verið stýrt af teknókratastjórn Marios Monti frá haustinu 2011 þegar Berlusconi hrökklaðist frá völdum. Monti innleiddi margar nauðsynlegar en afar óvinsælar aðgerðir þar sem skorið var niður í útgjöldum hins opinbera og skattar og gjöld hækkuð. Hann hlaut ekki brautargengi í kosningunum, þar sem andúð almennings á stjórnmálastéttinni kom berlega í ljós og framboð grínistans Beppes Grillo hlaut um fimmtung atkvæða. Grillo lýsti yfir mikilli óánægju með útnefningu Letta, sem hann sagði skýrt dæmi um samtryggingu gömlu flokkanna.
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira