Biðin langa eftir aðstoð á Filippseyjum Guðsteinn Bjarnason skrifar 15. nóvember 2013 11:45 Örmagna eftir að hafa beðið fjóra sólarhringa á flugvellinum í Tacloban eftir því að komast burt.
3.621 er látinn, 1.140 er saknað og 12.166 særðir eftir hamfarirnar á Filippseyjum í lok síðustu viku, samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum þar og hjálparstofnunum. Erfiðlega hefur gengið að koma aðstoð til allra, sem á þurfa að halda og hefur fólk sums staðar nú þurft að bíða í viku við kröpp kjör, jafnvel húsnæðislaust, án matvæla, drykkjarvatns og án læknishjálpar. Athygli hjálparstofnana hefur beinst mjög að borginni Tacloban, sem varð verst úti í hamförunum, en afskekktari staðir hafa orðið útundan. Þannig bíða íbúar í þorpinu Marabut enn eftir aðstoð. Bærinn er rústir einar og íbúar horfa til himins í hvert sinn sem þyrlur sjást sveima, en enn hefur engum pakka verið varpað niður þar. „Okkur finnst við vera algerlega gleymd,” segir Mildred Labado, bæjarstjórnarmaður þar í þorpinu. Öll hús í þorpinu, nærri 16 þúsund, eyðilögðust með öllu, meira en tvö þúsund manns hlutu meiðsli, en enn er aðeins vitað til þess að 20 manns hafi látið lífið. Átta að auki er þó saknað. Í öðru þorpi, Guiuan, hafa íbúarnir gripið til sinna ráða og reyna að bjarga sér, þótt aðstoð hafi enn ekki borist. Fólk er að hreinsa burt brak af götum bæjarins, smíða sér bráðabirgðaskýli úr tilfallandi efni og reyna að koma lífinu í nokkurn veginn eðlilegt horf - til bráðabirgða að minnsta kosti. „Við erum hér ein og verðum að gera þetta á eigin spýtur,” hefur AP fréttastofan eftir Dionesio de la Cruz, fertugum bæjarbúa sem var í óða önn að smíða sér rúm. „Við búumst ekki við því að neinn komi að hjálpa okkur.”
Mest lesið Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Fleiri fréttir Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Sjá meira