Hugo Chavez látinn 5. mars 2013 22:09 Nordicphotos/Getty
Forseti Venesúela, Hugo Chavez, er látinn eftir tveggja ára baráttu við krabbamein. Varaforseti Venesúela greindi frá þessu í sjónvarpsávarpi í kvöld. Þar með er fjórtán ára veru Chavez í forsetastól Suður-Ameríkulandsins á enda. Reuters greinir frá þessu. Yfirvöld í Venesúela greindu frá því í gær að forsetinn væri þjakaður af alvarlegri sýkingu í öndunarfærum og að brugðið gæti til beggja vona um hvort hann lifði hana af eða ekki. Sýkingin hefði versnað til muna síðastliðna daga. Leiðtoginn 58 ára hafði gengist undir fjórar aðgerðir á Kúbu vegna krabbameins sem gerði fyrst vart við sig á mjaðmarsvæðinu um mitt árið 2011. Síðasta aðgerð hans var 11. desember og hafði forsetinn ekki sést opinberlega síðan þá. „Þetta er augnablik mikils sársauka,“ sagði Maduro umkringdur ráðherrum í ávarpi sínu í kvöld. Mátti heyra að hann átti erfitt með að koma upp orðunum. Chavez vann yfirburðasigur í forsetakosningunum í október síðastliðnum en kosið er til sex ára í senn í Venesúela. Dauði forsetans mun valda milljónum stuðningsmanna hans miklum vonbrigðum. Fylgismenn Chavez heilluðust ekki síst af sjarma hans, andstöðu hans við yfirvöld í Bandaríkjunum og stefnu í olíumálum sem færðu fólki í fátækrarhverfum mat og ókeypis heilbrigðisþjónustu. Andstæðingar Chavez litu á hann sem einræðisherra með of mikið sjálfsálit sem fór illa með olíulindir Venesúela manna. Meðfylgjandi mynd var birt af Chavez að lokinni aðgerðínni á Kúbu í desember. Með honum á myndinni eru dætur hans tvær.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Fleiri fréttir Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Sjá meira