Erlent

Flugi seinkað vegna dauðvona móður

Mynd/Getty
San Fransisco-búinn Kerry Drake er flugfélaginu United Airlines þakklátur eftir að tengiflugi hans var seinkað um tuttugu mínútur svo hann næði því.

Móðir Drake þjáðist af svokallaðri iktsýki (Rheumatoid arthritis) og lá dauðvona á spítala í borginni Lubbock í Texasfylki. Sonurinn flaug með United-flugfélaginu frá San Fransisco til Houston, þar sem hann hugðist fljúga með annarri vél til Lubbock fjörutíu mínútum síðar.

Fyrra flugi Drake seinkaði hins vegar og var útlit fyrir að hann næði ekki seinna fluginu, sem var það síðasta þann daginn. Vitandi að móðir hans gæti dáið á hverri stundu brast Drake í grát í flugvélinni og gáfu flugliðar sig á tal við hann.

Þegar þeim var ljóst hvert vandamálið væri fengu þær upplýsingar um tengiflugið og flugstjórinn bað Lubbock-vélina að hinkra eftir Drake. Það var gert og tuttugu mínútum eftir áætlaðan brottfarartíma fór hún í loftið með Drake innanborðs.

United hefur fengið lof í lófa fyrir greiðviknina, en flugfélög keppa sín á milli í stundvísi og því er hver mínúta dýrmæt.

Drake náði á spítalann í tæka tíð og kvaddi móður sína, en hún lést um morguninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×