Erlent

Margir syrgja sárt en sumir eru fegnir

Guðsteinn Bjarnason skrifar
„Ég er Chavez“ stendur á skiltunum sem þessir eldheitu aðdáendur forsetans drógu upp eftir að frést hafði af láti hans.
„Ég er Chavez“ stendur á skiltunum sem þessir eldheitu aðdáendur forsetans drógu upp eftir að frést hafði af láti hans. fréttablaðið/AP
Efna þarf til forsetakosninga í Venesúela innan 30 daga, nú þegar Hugo Chavez er látinn. Notaði olíuauð landsins til að styrkja stöðu fátækra en hefur verið gagnrýndur fyrir virðingarleysi fyrir mannréttindum.

Viðbrögðin við andláti Hugo Chavez, forseta Venesúela, hafa ýmist verið sorg eða gleði. Aðdáendur hans gráta hástöfum en aðrir fagna því að þessi umdeildi leiðtogi sé farinn frá.

Töluverð óvissa ríkir þó um hvað við tekur nú þegar Chavez er farinn. Efna þarf til forsetakosninga innan 30 daga og sjálfur hafði Chavez hvatt landsmenn til að kjósa varaforseta sinn, Nicolas Marduro.

Stemmningin í kringum íburðarmikla jarðarför, sem haldin verður á næstunni með langorðum lofgjörðum um Chavez, mun vafalaust styrkja stöðu Marduros en hann getur þó engan veginn gengið að sigri vísum.

Fátækari hluti landsmanna mun að vísu flykkja sér um Marduro, enda hefur Chavez óspart notað olíuauð landsins til að styrkja stöðu fátækra. Helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Henrique Capriles, á þó einnig mikinn stuðning meðal þeirra sem hafa verið ósáttir við stjórnarhætti Chavez.

Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja stjórnartíð Chavez hafa einkennst af einræðishneigð og grímulausu virðingarleysi fyrir mannréttindum. Hann hafi í reynd sölsað undir sig hæstarétt landsins og gengið hart fram gegn blaðamönnum og öðrum sem gagnrýndu forsetann eða stefnu hans.

Hugo Chavez var fyrst kosinn forseti Venesúela árið 1998 með 56 prósentum atkvæða. Sex árum áður hafði hann reynt að gera stjórnarbyltingu og sat tvö ár í fangelsi.

Eitt fyrsta verk hans í embætti var að semja nýja stjórnarskrá. Hann hefur síðan þrisvar verið endurkosinn forseti, nú síðast í haust en honum entist ekki heilsa til að taka við embættinu formlega í janúar þegar nýtt kjörtímabil hófst.

Hann veiktist af krabbameini árið 2011 og hefur nokkrum sinnum leitað sér lækninga á Kúbu, en aldrei hefur verið gert opinbert nákvæmlega hvaða tegund af krabbameini það var sem hrjáði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×