Margir syrgja sárt en sumir eru fegnir Guðsteinn Bjarnason skrifar 7. mars 2013 06:00 „Ég er Chavez“ stendur á skiltunum sem þessir eldheitu aðdáendur forsetans drógu upp eftir að frést hafði af láti hans. fréttablaðið/AP
Efna þarf til forsetakosninga í Venesúela innan 30 daga, nú þegar Hugo Chavez er látinn. Notaði olíuauð landsins til að styrkja stöðu fátækra en hefur verið gagnrýndur fyrir virðingarleysi fyrir mannréttindum. Viðbrögðin við andláti Hugo Chavez, forseta Venesúela, hafa ýmist verið sorg eða gleði. Aðdáendur hans gráta hástöfum en aðrir fagna því að þessi umdeildi leiðtogi sé farinn frá. Töluverð óvissa ríkir þó um hvað við tekur nú þegar Chavez er farinn. Efna þarf til forsetakosninga innan 30 daga og sjálfur hafði Chavez hvatt landsmenn til að kjósa varaforseta sinn, Nicolas Marduro. Stemmningin í kringum íburðarmikla jarðarför, sem haldin verður á næstunni með langorðum lofgjörðum um Chavez, mun vafalaust styrkja stöðu Marduros en hann getur þó engan veginn gengið að sigri vísum. Fátækari hluti landsmanna mun að vísu flykkja sér um Marduro, enda hefur Chavez óspart notað olíuauð landsins til að styrkja stöðu fátækra. Helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Henrique Capriles, á þó einnig mikinn stuðning meðal þeirra sem hafa verið ósáttir við stjórnarhætti Chavez. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja stjórnartíð Chavez hafa einkennst af einræðishneigð og grímulausu virðingarleysi fyrir mannréttindum. Hann hafi í reynd sölsað undir sig hæstarétt landsins og gengið hart fram gegn blaðamönnum og öðrum sem gagnrýndu forsetann eða stefnu hans. Hugo Chavez var fyrst kosinn forseti Venesúela árið 1998 með 56 prósentum atkvæða. Sex árum áður hafði hann reynt að gera stjórnarbyltingu og sat tvö ár í fangelsi. Eitt fyrsta verk hans í embætti var að semja nýja stjórnarskrá. Hann hefur síðan þrisvar verið endurkosinn forseti, nú síðast í haust en honum entist ekki heilsa til að taka við embættinu formlega í janúar þegar nýtt kjörtímabil hófst. Hann veiktist af krabbameini árið 2011 og hefur nokkrum sinnum leitað sér lækninga á Kúbu, en aldrei hefur verið gert opinbert nákvæmlega hvaða tegund af krabbameini það var sem hrjáði hann.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira