Erlent

Segjast hafa fundið sólarstein frá tímum víkinganna

Franskir vísindamenn við Rennes háskólann segjast hafa fundið sólarstein frá tímum víkinganna en talið er að víkingarnir hafi notað þessa steina sem siglingartæki.

Með þeim má sjá stöðu sólar hverju sinni þótt þungskýjað sé því steinarnir nema sólargeisla í gegnum skýjaþykkni.

Steinninn sem hér um ræðir er úr íslensku silfurbergi og hann fannst í flaki bresk skips frá 16. öld sem sökk í Ermasundi. Steinninn er ávalur og á stærð við sígarettupakka.

Lítið er vitað um sólarsteina en Frakkarnir telja að þeir hafi verið notaðir samhliða þeim frumstæðu áttavitum sem voru komnir í notkun á 13. öld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×