Vilja fá forseta Ítalíu sem vitni í mafíumáli 18. maí 2013 08:30
Ákæruvaldið á Ítalíu vill kalla hinn tæplega 88 ára gamla forseta landsins, Giorgio Napolitano, fyrir sem vitni í komandi dómsmáli um leynisamninga sem hið opinbera gerði við mafíuna á síðasta áratug síðustu aldar. Málið snýst um að háttsettir embættismenn, stjórnmálamenn og yfirmenn í ítölsku lögreglunni hafi samið við mafíuna á Sikiley um að hún léti af morðherferð sinni á meginlandi Ítalíu sem hófst árið 1992. Í staðinn myndi hið opinbera sjá til þess að fangelsisdómar yfir um 300 meðlimum mafíunnar sem þá sátu inni yrðu styttir. Á þessu ári sem hér um ræðir var Napolitano þingforseti fulltrúadeildar ítalska þingsins. Í frétt frá fréttastofunni dpa segir að dómstóll á Ítalíu hafi nú þessa beiðni til athugunar. Ekki liggur ljóst fyrir hvort fyrrgreint leynisamkomulag hafi nokkurn tíman öðlast gildi. Morðherferðin var á vegum Corleonesi fjölskyldunnar og hófst í framhaldi af því að Salvatori Riina foringi hennar, oft kallaður Dýrið, var handtekinn. Í kjölfarið voru m.a. tveir þekktir saksóknarar sem börðust gegn mafíunni myrtir og vöktu þau morð heimsathygli.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent Stúlkan fannst heil á húfi Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Sjá meira