Sextíu slasaðir eftir árás píranafiska í Argentínu 26. desember 2013 22:00 Talið er að hitabylgja hafi ollið þessari óvenjulegu hegðun píranafiskann. mynd/afp
Meira en 60 manns slösuðust í námundan við borgina Rosario í Argentínu á jóladag þegar óðir píranafiskar söfnuðust saman í fljóti og gerðu árás á fólk sem hafði leitað þangað til að kæla sig niður vegna hitabylgju sem nú gengur yfir svæðið. Borgin Rosario er rúmlega 300 kílómetra norðan af Buenos Aires en hitabylgja hefur gengið yfir svæðið og hitastig verið í kringum 38 gráður. Það hefur orðið þess valdandi að óvenjumikill fjöldi fólks hefur leitað í vatnið til að kæla sig niður en er talið að píranafiskarnir hafi einmitt safnast saman á yfirborðið vegna þess hve hitastigið er óvenjulegt. Fljótið sem um ræðir heitir Píranafljót og ber heitið af ástæðu, enda fljótið krökkt af kjötætufisk. Heilsugæslustarfsmaður á svæðinu, Gustavo Centurion, sagði í samtali við fréttastofu AFP að árásin hafi verið einkar harðfylgin og að fiskarnir hafi beinlínis bitið hold af fólki. Þá hafi stúlka misst hluta af fingri í árásinni. Á vef Vísindavefsins segir að flestar tegundir píranafiska stunda hræát frekar en að drepa sér til matar auk þess sem ein ættkvíslin, Catoprion, nartar aðallega af hreistri eða uggum annarra fiska. Sú ímynd sem almenningur hafi af píranafiskum eigi sér vart stoð í raunverulegu eðli þessara fiska því píranafiskar ráðist afar sjaldan á stór spendýr og árásir á menn séu mjög sjaldgæfar.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Fleiri fréttir Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Sjá meira