Fótbolti

Eiður Smári sektaður fyrir hraðaakstur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Club Brugge í Belgíu, komst í fréttirnar þar í landi fyrir að fá umferðarsekt fyrir hraðaakstur.

Eiður var mældur á 106 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst þann 23. október árið 2012.

Svo virðist hins vegar vera að Eiði Smára hafi aldrei borist sektin þar sem hann flutti stuttu síðar án þess að tilkynna breytt heimilisfang.

Málið var því tekið upp í réttarsal í gær og Eiður Smári dæmdur til að greiða 150 evrur í sekt auk 85 evra í kostnað. Samtals um 38 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×