Kolbeinn byrjaði í sigri Ajax Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 15. desember 2013 13:39 Kolbeinn átti fína spretti í leiknum en var í mjög góðri gæslu. mynd:nordic photos/getty
Kolbeinn Sigþórsson var í fyrsta sinn í byrjunarliði Ajax síðan hann meiddist á Laugardalsvelli þegar Ísland og Króatía gerðu markalaust jafntefli í nóvember. Kolbeinn átti þátt í fyrra marki Ajax sem lagði Cambuur 2-1 á útivelli. Ajax féll út úr Meistaradeildinni í vikuni og það virtist hafa þó nokkur áhrif á leik liðsins því liðið náði sér ekki á strik í leiknum. Ajax fékk sitt fyrsta færi gegn nýliðum Cambuur á 40. mínútu þegar Kolbeinn átti frábæra sendingu á Davy Klaassen sem gaf fyrir á Lasse Schöne sem skoraði með góðu skoti. Þrátt fyrir að vera mikið meira með boltann gekk lítið sóknarlega hjá Ajax og þegar skammt var eftir fór Cambuur að pressa eftir jöfnunarmarki sem kom þegar Michiel Hemmen jafnaði á 82. mínútu með sínu sjöunda marki á leiktíðinni. Cambuur var líklegra til að skora sigurmark þar til Marcel Ritzmaier fékk að líta sitt annað gula spjald í upphafi uppbótartímans. Ajax nýtti sér liðsmuninn frábærlega því Davy Klaassen tryggði Ajax sigurinn á 92. mínútu eftir stórsókn Ajax. Ajax komst á topp deildarinnar með sigri en Vitesse getur aftur komist á toppinn vinni liðið leikinn sem liðið á til góða síðar í dag. Cambuur er í næst neðsta sæti deildarinnar, stigi á undan NEC.
Fótbolti Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Heilbrigðisráðherra lætur óvin Íslands heyra það Handbolti Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Dramatísk úrslit og vonir beggja liða nánast úr sögunni Handbolti Svíar furðu lostnir og of næs: „Létu pakka sér saman“ Handbolti Segist hafa brugðist gegn Íslandi: „Ég komst aldrei framhjá þeim“ Handbolti Fleiri fréttir Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sjá meira