Erlent

Tugir fanga teknir af lífi í Norður-Kóreu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Kim Jong Un ásamt herforingjum sínum.
Kim Jong Un ásamt herforingjum sínum. Nordicphotos/AFP
Þúsundir manna eru taldir hafa fylgst með opinberum fjöldaaftökum í Norður-Kóreu nýverið. Áttatíu fangar voru teknir af lifi.

Þetta fullyrðir heimildarmaður suður-kóresks dagblaðs, að því er þýska tímaritið Der Spiegel skýrir frá á vefsíðu sinni.

Flestir fanganna eru sagðir hafa verið líflátnir fyrir þær sakir, að þeir hafi haft í fórum sínum bannaða sjónvarpsþætti frá Suður-Kóreu. Aðrir hafi verið sakfelldir fyrir vændi.

Aftökurnar eru sagðar hafa farið fram þann 3. nóvember í sjö borgum Norður-Kóreu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×