Eyðileggingin á Filippseyjum Guðsteinn Bjarnason skrifar 11. nóvember 2013 11:30 Óþefur af rotnandi líkum er farinn að verða til óþæginda í borginni Tacloban á Leyte. Mikil eyðilegging er í borginni og brak út um allt, margir eru matarlausir og svo er bæði vatns- og rafmagnsskortur að hrjá fólk. Mynd/AP
Íbúar á hamfarasvæðunum á Filippseyjum eru nú að reyna að átta sig á umfangi eyðileggingarinnar. Fólk er að kanna rústir heimila sinna og leita í brakinu sem þekur stór svæði við strandirnar. Stjórnvöld segja að tvær milljónir manna hafi orðið illa úti þegar fellibylurinn Haiyan fór yfir landið fyrir helgi. Talið er að meira en tíu þúsund manns hafi látist, en opinberlega hafa aðeins 250 dauðsföll enn verið staðfest. Lætin í veðrinu voru slík að heilu skipin þeyttust upp á landi, bílar fuku út á sjó og brýr og bryggjur brotnuðu undan öldugangi. Um 800 þúsund manns yfirgáfu heimili sín áður en fárviðrið skall á, en margir þeirra urðu samt veðrinu að bráð vegna þess að skólar, kirkjur og stjórnsýslubyggingar sem fólkið leitaði skjóls í eyðilögðust í hamförunum. Erfitt er að fá skýra mynd af ástandinu vegna þess að net- og símasamband liggur víða niðri, samgönguleiðir hafa lokast og víða engin leið að komast á milli staða. Hundruð þúsunda manna þurfa á brýnni aðstoð að halda. Matar- og vatnsskortur hrjáir fólk, rafmagnsleysi er víða og ofan á allt er óþefur af rotnandi líkum, sem liggja grafin undir braki, farinn að berast um borgirnar. Fólk er mikið á ferli að leita að ástvinum sínum og eignum. „Við þurfum vatn og lyf vegna þess að mikið af fólkinu sem við erum hjá hefur hlotið meiðsli,” hefur AP fréttastofan eftir Eriku Mae Karakot á Leyte-eyju. „Sumir eru með niðurgang og þjást af ofþornun vegna skorts á vatni og mat.”Lítil stúlka kom í heiminn í bráðabirgðasjúkraskýli í Tacloban í morgun, og var skírð Bea Joy í höfuðið á ömmu sinni, Beatrice, sem enn er saknað.Mynd/APLoftmynd tekin úr herþyrlu sýnir eyðilegginguna í Guian í Samar-héraði, eftir að fellibylurinn Haiyan hafði farið þar hamförum.Mynd/APSkipið Tomi Elegance þeyttist upp á land í hamförunum á laugardag og situr þar fast í borginni TaclobanMynd/APÍbúar í Tacloban notuðu myndskreyttan segldúk til að skýla sér fyrir rigningunni á sunnudag.Mynd/APÞjófnaður úr verslunum er oft algengur í kjölfar hamfara. Hér sást íbúar í Tacloban bera þýfið burt.Nordicphotos/AFPÞessir herramenn í Palo á eyjunni Leyte náðu sér í dýnu á hóteli þar í borg.Nordicphotos/AFPHjálparbeiðni skrifuð með málningu á körfuboltavöll við ströndina í Tacloban.Nordicphotos/AFP
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira