Erlent

Talið að færri hafi farist en óttast var í fyrstu

Forseti Filippseyja, Benigno Aquino, segir að tala látinna eftir fellibylinn Haiyan sé ekki eins há og í fyrstu var óttast. Hingað til hefur verið talað um að tíu þúsund manns hið minnsta hafi farist, en forsetinn segist telja að um tvöþúsund og fimmhundruð manns hafi farist í óveðrinu.

Ástandið hjá þeim sem verst urðu úti er hinsvegar skelfilegt og Sameinuðu þjóðirnar meta það sem svo að ellefu milljónir manna hafi orðið fyrir einhverskonar áhrifum af völdum stormsins og tæplega sjöhundruð þúsund manns séu nú á hrakhólum.

Hjálparstarf gengur erfiðlega sökum veðurs og ónýtra samgöngukerfa og í nótt létust átta þegar vöruhús sem var búið að fylla af hjálpargögnum hrundi til grunna.

Enn á eftir að komast í samband við 29 bæi á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×