Erlent

Hæsta bygging Bandaríkjanna aftur í New York

Eins og sjá má er spýran engin smásmíði og til að setja hana í samhengi er hún næstum tvisvar sinnum hærri en Hallgrímskirkjuturn.
Eins og sjá má er spýran engin smásmíði og til að setja hana í samhengi er hún næstum tvisvar sinnum hærri en Hallgrímskirkjuturn.
Nefnd þartilbærra sérfræðinga úrskurðaði í gær að nýja World Trade Center í New York, sem byggt var á staðnum þar sem Tvíburaturnarnir stóðu áður, sé hæsta bygging Bandaríkjanna. Húsið tekur því við titlinum af Willis turninum í Chicago, sem áður hét raunar Sears turninn.

Turninn í New York mælist 1776 fet, eða 541 komma þrír metrar, en Willis turninn er 1451 fet eða 442 metrar.

Nefndin sat raunar lengi á rökstólum því stóra spurningin var, hvort stærðarinnar loftnet á toppi turnsins í New York ætti að telja með sem hluta af húsinu. Spíran sú er heil 400 fet, eða rúmir 120 metrar og því hefði Willis turninn í Chicago haldið titli sínum hefði nefndin úrskurðað að spíran væri ekki hluti af sjálfri byggingunni.

New York búum er því létt í dag og eiga þeir á ný hæsta hús landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×