Erlent

Stefnir í met í ópíumframleiðslu í Afganistan

Mynd/AFP
Ópíumframleiðsa í Afganistan hefur aldrei staðið í meiri blóma en nú um stundir. Í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðirnar segir að fyrir næstu uppskeru hafi ópíumfræjum verið sáð á svæði sem telur samanlagt tvöhundruð þúsund hektara.

Það þýðir þrjátíu og sex prósenta aukningu á uppskeru frá síðasta ári og ef ekki verði hægt að eyðileggja hana svo neinu nemi, muni ópíumframleiðsla í landinu fara vel yfir eftirspurn eftir eiturlyfinu í heiminum öllum. Mesta framleiðsluaukningin er í Helmand héraði, hvaðan breskir hermenn eru einmitt að undirbúa brottför sína nú um stundir.

Ein af helstu ástæðunum fyrir veru þeirra í héraðinu á annað borð var einmitt að stemma stigu við ópíumrækt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×