Sádi-Arabía hrekur innflytjendur úr landi Guðsteinn Bjarnason skrifar 14. nóvember 2013 11:15 Eþíópíumenn í einu úthverfa Ríad bíða þess að verða fluttir úr landi. Mynd/AP
Erlendir verkamenn í Sádi-Arabíu hafa lengi gegnt lykilhlutverki í atvinnulífi landsins, en eru nú margir anna hvort komnir í fangelsi eða farnir í felur eftir að stjórnvöld ákváðu að láta til skarar skríða gegn þeim. Afleiðingarnar blasa strax við: Rusl er farið að safnast upp á götunum, matvöruverslanir eru margar lokaðar og smærri verktakafyrirtæki sinna ekki lengur þeim byggingaframkvæmdum sem þau höfðu tekið að sér. Áratugum saman hafa innflytjendur átt auðvelt með að setjast að í Sádi-Arabíu. Þeir hafa sinnt láglaunastörfum sem heimamenn líta ekki lengur við: Verkamannastörfum, skrifstofustörfum og þjónustustörfum af ýmsu tagi. Atvinnuleysi hefur hins vegar verið að aukast undanfarið, var komið upp í 12,1 prósent í lok síðasta árs. Stjórnvöld virðast telja að lausnin sé fólgin í því að losna við innflytjendurna, þá losni um störf sem atvinnulausir Sádar geti stokkið í. Fyrr á þessu ári byrjuðu stjórnvöld að senda frá sér tilkynningar, þar sem innflytjendur eru varaðir við. Hundruð þúsunda hafa þegar verið fluttir úr landi, en sumir fengu frest sem rann svo út í síðustu viku. Síðan þá hafa 33 þúsund manns verið handteknir, en fjölmargir eru komnir í felur og eftir standa fyrirtækin, sem höfðu reitt sig á starfskrafta þeirra. „Þetta fólk hefur starfað í þessu landi og blóð þeirra er í steinunum og húsunum,” segir eigandi byggingafyrirtækis í höfuðborginni Ríad í viðtali við AP fréttastofuna. Hann vildi ekki koma fram undir nafni af ótta við hefndaraðgerðir stjórnvalda. „Það er ekki hægt að reka þá burt bara si svona.”
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira