Erlent

Bifvélavirki hannar búnað sem auðveldar barnsfæðingar

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Á hverju ári fara fram um 137 milljónir fæðinga og yfir fimm milljónir barna fæðast andvana eða deyja stuttu eftir fæðingu. Um 260 þúsund konur deyja við barnsburð.
Á hverju ári fara fram um 137 milljónir fæðinga og yfir fimm milljónir barna fæðast andvana eða deyja stuttu eftir fæðingu. Um 260 þúsund konur deyja við barnsburð.
Jorge Ondón, 59 ára gamall bifvélavirki frá Argentínu hefur hannað búnað sem getur komið sér vel í erfiðum barnsfæðingum. New York Times segir frá.

Búnaðurinn er samansettur af plastpoka sem er settur inn í nokkurskonar plastermi eða plasthylki sem er smurt og sett utan um höfuð barnsins. Pokinn er svo dreginn úr hylkinu og við það myndast togkraftur sem dregur barnið í heiminn.

Læknar vonast til þess að búnaðurinn verði til þess að bjarga börnum í fátækari löndum. Þeir vonast einnig til þess að notkun búnaðarins geti orðið til þess að fækka keisaraaðgerðum við fæðingar.

260 þúsund konur deyja árlega við barnsburð

Mario Merialdi, læknir hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (W.H.O.), segir hugmyndina mjög áhugverða og spennandi. Að sögn læknisins koma upp vandamál sem geta haft alvarlegar afleiðingar í um 10 prósent fæðinga ár ári hverju. Á hverju ári fara fram um 137 milljónir fæðinga og yfir fimm milljónir barna fæðast andvana eða deyja stuttu eftir fæðingu. Um 260 þúsund konur deyja við barnsburð.

Búnaður sem þessi, sem hjálpi barninu út þegar höfuð þess er til dæmis of stórt eða þegar móðirin er orðin uppgefin, getur skipt gríðarlega miklu máli að sögn Merialdi.

Hugmyndin kom til hans í svefni

Ondón fékk hugmyndina eftir að hafa séð myndband á YouTube sem sýnir hvernig hægt er að ná korktöppum úr vínflöskum. Hann segir að hugmyndin hafi komið til sín í svefni og hann hófst þegar handa við tilraunir. Fyrstu tilraunirnar fóru fram í eldhúsinu og hann notaði glerflösku, plastpoka og ermi sem eiginkona hans útbjó. Hann notaði svo dúkku dóttur sinnar sem módel fyrir barn.

Hugmyndin hefur þróast talsvert síðan Ondón fékk hana fyrst og hún er enn í þróun. Hann hefur fengið styrki til þess að vinna áfram að búnaðinum.

Búnaðurinn hefur þegar verið prófaður við fæðingar. 30 konur hafa samþykkt að prófa hann en það voru allt konur sem höfðu fætt áður og höfðu átt áfallalausar fæðingar. Til stendur að prófa búnaðinn á fleirum og læknar vonast til þess að hann verði til þess að fækka dauðsföllum við fæðingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×