Erlent

Fjórtán létust í fellibylnum Kleópötru á Sardiníu

Mynd/AP
Fjórtán eru látnir hið minnsta á ítölsku eyjunni Sardiníu eftir að fellibylurinn Kleopatra gekk þar á land í gærkvöldi. Nokkurra er enn saknað en hinar gríðarlegu rigningar sem fylgdu óveðrinu urðu til þess að ár á eyjunni flæddu yfir bakka sína þannig að bifreiðar fóru á kaf og brúarstólpar sópuðust burt.

Verst er ástandið í borginni Olbia. Fjölda fólks um allt Miðjarðarhaf var gert að yfirgefa heimili sín áður en stormurinn skall á en um mesta óveður á Sardiníu í manna minnum er að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×