Fótbolti

Jóhann Berg í liði vikunnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson
Jóhann Berg Guðmundsson NORDICPHOTOS/GETTY
Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður AZ Alkmaar, var valinn í lið vikunnar af vefsíðunni ad.nl.

Jóhann skoraði eitt mark gegn Ado Den Haag í sigri liðsins, 2-0, á laugardagkvöldið og átti fínan leik.

Leikmaðurinn hefur verið virkilega öflugur með AZ Alkmaar á tímabilinu sem og með íslenska landsliðinu að undanförnu.

AZ er í efsta sæti hollensku úrvalsdeildarinnar með 22 stig, einu stigi meira en Vitesse.



Jóhann Berg í fremstu víglínu í liði vikunnar.mynd/ad.nl



Fleiri fréttir

Sjá meira


×