Kom að Eriksson í bólinu með konunni sinni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. nóvember 2013 17:15 Nordicphotos/Getty
Ævisaga Sven-Göran Eriksson hefur ekki vakið jafnmikla athygli og sú hjá kollega hans Sir Alex Ferguson. Sagan snertir líka á ólíkum hlutum. Guardian fjallar um málið. Fyrrum landsliðsþjálfari Englands hefur meðal annars sagt frá því þegar hann samþykkti að taka við Manchester United af Ferguson árið 2002. Sömuleiðis ræðir hann um samband sitt við Nancy Dell'Olio. Eitt atvik virðist aðeins hafa ratað í norska útgáfu bókarinnar. Þá var Svíinn gripinn í bólinu, reyndar á sófanum, með giftri konu. Norskir lesendur lesa söguna af því þegar Eriksson fór út á lífið með einum af leikmönnum IFK Gautaborgar. Fór svo að vel fór á með Eriksson og einni vinkonu leikmannsins og æstust leikar heldur. Hins vegar fékk kvöldið ekki hinn fullkomna endi. „Við vorum kviknakin á sófanum. Hún hafði ekki sagt nokkurn skapaðan hlut um að hún væri gift en allt í einu opnuðust dyrnar og þar var maður í stærra lagi,“ segir Eriksson í bók sinni. „Hver í fjandanum ert þú,“ rifjar Eriksson upp að eiginmaðurinn hafi sagt. Eriksson sagði að líklega væri best að hann færi og undir það tók eiginmaðurinn. Svíinn gat ekki tekið veskið sitt, jakka, farsíma og skó með sér. Sem betur fer fann hann körfuboltaskó í stigaganginum. Einn hængur var þar á, skórnir voru í stærð 46 en Eriksson notar skó númer 39. Leikmaðurinn fór svo fyrir hönd Eriksson, náði í eigur Svíans og skilaði skónum.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Handbolti EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Handbolti Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Fleiri fréttir Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Sjá meira