Blandaðar bardagaíþróttir barna vekja óhug Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 7. nóvember 2013 14:37 Bardagarnir fara fram í járnbúrum og þykja nokkuð hrottalegir. mynd/daily mail
Vinsældir blandaðra bardagaíþrótta færast sífellt í aukanna meðal barna í Bandaríkjunum og er talið að um þrjár milljónir barna stundi íþróttina, allt niður í fimm ára gömul. Bardagarnir fara fram í járnbúrum og þykja nokkuð hrottalegir, og greinir Daily Mail frá því að í sumum tilfellum berjist börnin án hlífðarbúnaðar. Barnabardagarnir hafa verið gagnrýndir og sagðir villimannslegir. Áhyggjur hafa skapast af öryggi barnanna og áhrifum íþróttarinnar á hegðun þeirra. Stuðningsmenn sportsins bera það saman við hnefaleika og hefðbundnar bardagaíþróttir og segja íþróttina efla sjálfsaga og vera prýðilega líkamsrækt. Ljósmyndarinn Sebastian Montalvo ferðaðist um Bandaríkin í von um að varpa ljósi á íþróttina, þá sem hana stunda og foreldra þeirra. Eitt barnanna er hinn sjö ára Kristopher Arrey, en hann þykir grimmur í hringnum og er kallaður Handleggjasafnarinn (The Arm Collector). Í samtali við fréttastofu CNN segir Montalvo að lykillinn að velgengni sé stuðningur foreldranna. Hann segir þá elska börnin sín skilyrðislaust og vilji aðeins að þau sigri. Hann segir börnin vera látin takast í hendur eftir hvern bardaga, en stuðningsmenn íþróttarinnar segja einmitt að hún kenni börnum að tapa jafnt sem sigra.Barnabardagarnir hafa verið gagnrýndir og sagðir villimannslegir.mynd/daily mail„Þetta er frábær leið fyrir þau til að komast í form,“ segir Chris Conolley, kennari blandaðra bardagaíþrótta í Alabamafylki. Hann segir jafnframt að bardagar barnanna séu öðruvísi en fullorðinna og aðaláherslan sé lögð á það að hafa gaman. „Ég tel að þetta sé hættulegt,“ segir barnalæknirinn Lisa Thornton í samtali við sjónvarpsþáttinn Good Morning America. „Íþróttin getur leitt til meiðsla á hálsi, beinum og liðböndum.“ Þá hefur John McCain, ríkisstjóri Arizona og fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, fordæmt íþróttina. Hann líkir henni við hanaat og skrifaði ríkisstjórum allra fylkja bréf árið 1998 þar sem hann óskaði eftir því að íþróttin yrði bönnuð.Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira