Enski boltinn

Bruce: Áttum ekki skilið að falla úr leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steve Bruce til vinstri, Andre Villas-Boas til hægri.
Steve Bruce til vinstri, Andre Villas-Boas til hægri. nordicphotos/getty
Steve Bruce, knattspyrnustjóri Hull, var að vonum ekki sáttur eftir leikinn gegn Tottenham en liðið féll úr leiki í enska deildarbikarnum eftir vítaspyrnukeppni í gær.

Gylfi Þór Sigurðsson var magnaður í leik Tottenham og skoraði glæsilegt mark fyrir liðið í venjulegum leiktíma sem og mark í vítaspyrnukeppninni.

„Mínir leikmenn voru frábærir í kvöld,“ sagði Bruce eftir leikinn í gær.

„Þeir áttu ekki skilið að falla úr leik, heppnin var bara ekki með okkur í kvöld. Við fengum í raun betri færi en Spurs í leiknum,“ sagði Bruce í viðtali við BBC.

Hull tapaði á dramatískan hátt í vítaspyrnukeppni 8-7.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×