Notuðu gíraffakjöt í stað nautakjöts í Suður Afríku 4. mars 2013 06:13
Matvælarannsóknir í Suður Afríku sýna að í einhverjum tilvikum var gíraffakjöt notað í tilbúin matvæli í stað nauta- og antilópukjöts. Varan sem hér um ræðir heitir biltong og er ákveðin gerð af þurrkuðu kjöti. Í biltong á að nota nautakjöt eða kjöt af kudu antilópum samkvæmt uppskriftinni. Í rannsókninni kom í ljós að gíraffakjöt var að finna í þessari matvöru. Þessar upplýsingar koma í kjölfar frétta af annarri umfangsmikilli rannsókn í Suður Afríku sem afhjúpaði veruleg vörusvik þegar kom að innihaldslýsingum á tæplega 140 tilbúnum matvælum eins og hamborgurum,pylsum og áleggi, sem áttu að innihalda nautakjöt. Í nær 70% tilvika reyndist kjöt af ösnum, vatnavísundum og geitum vera til staðar í þessum matvælum í stað nautakjöts. Í frétt um málið hjá AP fréttastofunni er haft eftir prófessor Louwrens C. Hoffman, sem m.a. stjórnaði annarri af fyrrgreindum rannsóknum, að vörusvik sem þessi séu viðvarandi vandamál í landinu. Þetta sé slæmt m.a. af trúarlegum ástæðum þegar trúarbrögð banna neyslu á kjöti af ákveðnum dýrum.
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Fleiri fréttir Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Sjá meira