Erlent

Fíkniefnasjúklingar í Rio de Janeiro þvingaðir í meðferð

Borgarstjórnin í Rio de Janeiro hefur gripið til þess ráð að þvinga fíkniefnasjúklinga borgarinnar í meðferð.

Þetta á einkum við um þá sem eru háðir krakki eða hættulegustu útgáfunni af kókaíni sem er bráðvanabindandi. Þetta kemur í kjölfar svipaðara aðgerða hjá borgarstjórn Sao Paolo.

Þegar hafa nær 100 fíkniefnasjúklingar verið settir í meðferð á undanförnum tveimur vikum.

Í frétt um málið í blaðinu The Rio Times segir að yfir milljón manns í Brasilíu misnoti krakk og hefur sá fjöldi lítið minnkað undanfarin tvö ár þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda í þá átt.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×