Erlent

Undirbúningur að páfakjöri hefst í dag

Undirbúningur að kjöri næsta páfa hefst í dag. Þá munu 115 kardinálar koma saman til fyrsta undirbúningsfundar fyrir kjörið.

Talið er að fundirnir muni standa eitthvað fram eftir vikunni. Að þeim loknum verða kardinálarnir lokaðir inni í Sistine kapellunni og verður ekki hleypt út aftur fyrr en þeir hafa valið nýjan páfa.

Þegar niðurstaðan liggur fyrir er það kynnt með því að láta ljósan reyk stíga upp úr þaki kapellunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×