Erlent

Sportveiðimaður veiddi 700 kílóa þungan Grænlandshákarl

Það beit heldur betur á krókinn hjá norska sportveiðimanninum Thor Eivind Flakstad um helgina en hann setti í rúmlega 700 kílóa þungan og nærri fjögurra metra langan Grænlandshákarl þegar hann var á skaki undan ströndinni norðarlega í Noregi.

Thor dró ferlíkið upp að hlið báts síns og mældi  en sleppti hákarlinum síðan að því loknu. Hann segir það vera ógleymanlega upplifun að fá svo stóran fisk á færið.

Þetta er þó ekki stærsti Grænlandshákarlinn sem veiðst hefur á stöng því tveir danskir veiðimenn fengu einn sem var 880 kíló að þyngd árið 2010 í Boknafirðinum í Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×