Erlent

Syrgðu fjölskylduna í Brooklyn

Nordicphotos/Getty
Mikill mannfjöldi kom saman í Brooklyn-hverfi í New York í dag til minningar um Glauber fjölskylduna sem lét lífið af völdum áreksturs í borginni í gær.

Parið Nachman og Raizy Glauber, sem var af gyðingaættum, pantaði sér leigubíl í gær. Raisy var komin sjö mánuði á leið og ákváðu þau að halda á sjúkrahúsið þar sem hún fann fyrir kviðverkjum.

Mannfjöldinn í BrooklynNordicphotos/Getty
Leigubíllinn lenti í árekstri á leið sinni á sjúkrahúsið með þeim afleiðingum að parið beið bana. Leigubílstjórinn lifði slysið af og tókst að fæða barnið með keisaraskurði. Drengurinn, sem var sjö merku að þyngd, lét hins vegar lífið í morgun.

Forsíða Daily News í morgun.Nordicphotos/Getty


Lögreglan leitar enn bílstjóra og farþega BMW-bifreiðar sem keyrði af vettvangi eftir áreksturinn. Fox-fréttastöðin greinir frá því að lögreglan þekki deili á ökumanninum sem hafi áður komið við sögu lögreglu fyrir að keyra án ökuréttinda.

Nordicphotos/Getty
Maðurinn var á tæplega 100 km/klst hraða þegar bíll hans keyrði inn í leigubílinn sem varð til þess að parið og að lokum barnið beið bana.


Tengdar fréttir

Ungabarnið lést sólarhring á eftir foreldrunum

Barnið sem kom í heiminn eftir að foreldrar þess létust í bílslysi í New York um helgina er látið. Foreldrarnir, Nachman og Raizy Glauber, voru á leiðinni á spítala í gær þegar leigubíll sem þau voru í lenti i alvarlegum árekstri í Brooklyn. Læknar gerðu keisaraskurð og móðurinni til þess að reyna að bjarga barninu. Barnið dó hins vegar klukkan hálfellefu í morgun að íslenskum tíma. Móðirin, Raizy Glauber, var gengin sjö mánuði á leið þegar bílslysið varð. Hún fann fyrir verkjum og því ákvað parið að panta sér leigubíl og fara á spítalann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×