Erlent

"Er einhver til í að hjálpa konunni og bjarga lífi hennar?"

„Við getum ekki veitt fyrstu hjálp á þessu hjúkrunarheimili," sagði hjúkrunarfræðingur á Glenwood Gardens hjúkrunarheimilinu í Bakersfield í Kaliforníu.

Hjúkrunarkonan hringdi í neyðarlínuna vestanhafs, 911, á dögunum vegna þess að sjúklingur gat ekki andað. Í símtalinu, sem gert hefur verið opinbert, hvetur starfsmaður neyðarlínunnar hjúkrunarkonuna til þess að veita konunni fyrstu hjálp. Hún talar hins vegar fyrir daufum eyrum.

„Er hún að anda?" spyr starfsmaður neyðarlínunnar og fær þau svör að öndun hennar sé lítil sem engin. Starfsmaður neyðarlínunnar biður hjúkrunarkonuna um að rétta einhverjum öðrum símann. Hjúkrunarkonan segir það hins vegar ekki samkvæmt stefnu hjúkrunarheimilisins að starfsmenn né aðrir sjúklingar veiti fyrstu hjálp.

„Er einhver til í að hjálpa konunni og bjarga lífi hennar?" segir starfsmaður neyðarlínunnar við dræm viðbrögð á hinum enda línunnar. Hægt er að hlusta á símtalið hér fyrir neðan.

Sjúkraflutningamenn mættu á svæðið skömmu síðar og fluttu hina 87 ára gömlu Lorraine Bayles á sjúkrahús. Það reyndist þó of seint og lét hún lífið á sjúkrahúsinu. Óhætt er að segja að mikið hafi verið fjallað um atvikið í fréttum allra tegunda miðla í Bandaríkjunum og víðar í dag.



Forsvarsmaður Glenwood Gardens, Jeffrey Toomer, sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann segist standa með starfsmanni sínum. Þar segir hann brýnt fyrir starfsmönnum heimilisins að hringja í neyðarlínuna um leið og neyðartilfelli komi upp. Óska eigi eftir aðstoð og bíða við hlið viðkomandi þangað til hjálp ber að.

Toomer sagði þó að rannsókn yrði gerð og atvikið skoðað innanhúss. Þá sagði hann að öllum íbúum á hjúkrunarheimilinu sé gert ljóst um þessa starfshætti þegar þeir flytja inn á heimilið.

Nánar um málið hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×