Segir vörslur Guðbjargar eiga heima á DVD-disk Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. júlí 2013 14:15 Guðbjörg í leiknum umtalaða gegn Þýskalandi. Nordicphotos/Getty
Evrópumóti kvennalandsliða í knattspyrnu lauk með sigri Þjóðverja á Norðmönnum á sunnudag. Á heimasíðu Knattspyrnusambands Evrópu gera blaðamenn upp mótið. Nokkrir blaðamenn eru beðnir um að nefna þau augnablik sem þeir teldu hafa staðið upp úr í Svíþjóð. Átta blaðamenn nefna sitt uppáhaldsaugnablik og nefna tveir þeirra Ísland til sögunnar. „Ísland vildi umfram allt bæta árangur sinn frá því fyrir fjórum árum þegar allir leikirnir töpuðust," skrifar blaðmaðurinn Trevor Haylett og rifjar upp jöfnunarmark Íslands gegn Noregi. „Þremur mínútum fyrir leikslok var brotið á hinni sívinnandi Söru Björk Gunnarsdóttur innan teigs og vítaspyrna dæmd. Landsliðsþjálfarinn Siggi Eyjólfsson var taugaóstyrkur þegar markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir setti boltann á punktinn áður en hún kláraði dæmið af sannfæringu. Um yndislegt augnablik fyrir Ísland var að ræða. Fyrsta stig A-landsliðs á stórmóti."Guðbjörg stóð í ströngu gegn Þjóðverjum.Nordicphotos/GettyIan Holyman fer fögrum orðum um frammistöðu Guðbjargar Gunnarsdóttur gegn áttföldum Evrópumeisturum Þýskalands. Hann segir réttilega að Guðbjörg hafi fengið tækifærið vegna meiðsla Þóru Bjargar Helgadóttur. Í Þýskalandsleiknum hafi hún varið skalla Lenu Lotzen með miklum tilþrifum sem og skot Céliu Okoyino da Mbabi af stuttu færi. „Vörslurnar tvær voru aðeins hluti af þeim sem ættu heima á DVD-disk og gera tilkall til bestu vörslu keppninnar," ritar Holyman og bætir við: „Hefði ekki verið fyrir stórkostlegar vörslur Guðbjrgar hefðu lokatölurnar verið í anda þeirra sem sjást í rúbbý en ekki fótbolta."
Mest lesið Mun saga Arons endurtaka sig? Fótbolti „Eins og að horfa á bíómynd“ Sport Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Fótbolti „Setjum pressu á leikmenn að haga sér fullkomlega næstu tvö árin“ Fótbolti Boehly selur og kveður Chelsea Enski boltinn Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Enski boltinn Ný stjarna fæðist í Heiðmörk um helgina Sport „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport Fagn Brynjólfs slær í gegn Fótbolti Fleiri fréttir Sextán í bann fyrir nasistakveðjur Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Hundrað marka Messi lét MLS-stjórann heyra það „Setjum pressu á leikmenn að haga sér fullkomlega næstu tvö árin“ Fagn Brynjólfs slær í gegn Boehly selur og kveður Chelsea Mun saga Arons endurtaka sig? Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Með fullt hús stiga eftir níu marka veislu Birta upptöku sem sannar kynþáttaníð gegn Mikael „Þá mun ég reka mig sjálfur“ Eiginkona og sonur vitni að grófri árás sjö stuðningsmanna FCK „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Svona er hópurinn: Ísak Snær, Rúnar Alex og Arnór með Arnar kynnti nýjasta hópinn og mætti í spjall Rekinn eftir aðeins fjóra leiki í starfi Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Efnilegastur í Bandaríkjunum: Slær Freddy Adu við Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Sjá meira