Fótbolti

Af hverju spilar Guðbjörg í númer þrettán?

Óskar Ófeigur Jónsson í Halmstad skrifar
Tvær númer 13. Guðbjörg Gunnarsdóttir og Célia Okoyino da Mbabi.
Tvær númer 13. Guðbjörg Gunnarsdóttir og Célia Okoyino da Mbabi. Mynd/AFP
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir sker sig svolítið úr þegar kemur að númerið á keppnisbúningi hennar. Það er ekki algengt að markmenn leiki í markmannstreyju númer þrettán.

Vísir gekk á Guðbjörgu og spurði hana út í það af hverju hún spilar í markmannsbúningi númer þrettán hjá íslenska landsliðinu. Hinir markmenn liðsins spila í númer eitt (Þóra Björg Helgadóttir) og tólf (Sandra Sigurðardóttir).

„Mér hefur alltaf langað að vera númer þrettán því ég sé þetta sem ólukku annarra en ekki ólukku mína. Þetta var í raun bara grín að framherjarnir myndu alltaf klúðra þegar þeir sæju töluna þrettán," segir Guðbjörg.

Rachel Brown, varamarkvörður Englendinga og Dolores Gallardo, varamarkvörður Spánverja eru einu markverðirnnir á EM sem spila í treyju númer þrettán eins og Guðbjörg em hvorug þeirra hefur komið við sögu í leikjum sinna landsliða.

Þess má geta að Guðbjörg hefur fengið á sig fjögur mörk á EM og tvö þeirra skoraði Þjóðverjinn Célia Okoyino da Mbabi sem spilar einmitt í treyju númer þrettán.

Leikmenn sem spila í númer þrettán á EM 2013:

Ísland - Guðbjörg Gunnarasdóttir, markmaður

Danmörk - Johanna Rasmussen, miðjumaður

Finnland - Heidi Kivelä, miðjumaður

Ítalía - Elisa Camporese, miðjumaður

Svíþjóð - Emmelie Konradsson, miðjumaður

Þýskaland - Célia Okoyino da Mbabi, framherji

Holland - Sylvia Smit, framherji

Noregur - Melissa Bjånesöy, framherji

England - Rachel Brown, markmaður

Frakkland - Camille Catala, miðjumaður

Rússland - Alla Sidorovskaya, miðjumaður

Spánn - Dolores Gallardo, markvörður

Leikur Íslands og Svíþjóðar í átta liða úrslitum á EM kvenna í fótbolta hefst klukkan 13.00 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×