Bara draumur fyrir okkur ef hin liðin vanmeta okkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júlí 2013 12:45 Margrét Lára á æfingu með íslenska liðinu ytra. Mynd/ÓskarÓ
Margrét Lára Viðarsdóttir og félagar hennar í íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta stefna á sigur og þrjú stig í fyrsta leiknum á móti Noregi sem fram fer í Kalmar í kvöld. „Ég er búin að segja það lengi að það skiptir öllu máli að byrja vel á mótinu. Með því að fá þrjú stig í fyrsta leik þá finnum við það að við erum með í þessu móti og eigum möguleika á því að komast upp úr riðlinum. Það er ótrúlega mikilvægt en líka það að fá sjálfstraust í liðið. Þó að stemmningin sé góð þá erum við fótboltalið og erum hér til að ná árangri. Þegar árangur næst kemur ennþá betri stemmning í hópinn," segir Margrét Lára. Íslenska liðið er ekki hátt skrifað í samanburði við Þýskaland, Noreg og Holland sem eru öll lið sem knattspyrnuspekingar telja líkleg til afreka á mótinu. „Það sjá öll liðin kannski möguleika á því að fá þrjú stig á móti okkur. Það er ekkert óeðlilegt í ljósi úrslitanna í leikjum okkar á árinu. Við vonumst til að það vinni bara með okkur og það væri bara draumur fyrir okkur ef liðin vanmeta okkur. Það aldrei ákjósanlegt þegar lið fara að vanmeta einhvern og við þekkjum það best sjálfar. Það er ákveðinn möguleiki fyrir okkur að vera litla liðið í riðlinum. Það væri skemmtilegt að geta komið svolítið á óvart," segir Margrét Lára. „Ef maður hugsar draumafótboltaleikinn þá er það að skora á fyrstu fimm til tíu mínútum. Það er mikilvægt að byrja vel og ná inn marki því þá getur maður svolítið farið að verja sitt eigið mark. Fyrst og fremst fyrir okkur er að spila góða vörn og halda markinu okkar hreinu. Við erum síðan með skeinuhætt lið fram á við. Við getum alltaf skorað mörk og höfum sýnt það því það eru fáir leikir þar sem við höfum ekki skorað mark."
Mest lesið „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn „Allir orðnir vinir í skóginum“ Íslenski boltinn Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann Fótbolti Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn Áttaði sig ekki á því að hafa unnið mótið Sport Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Körfubolti „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Íslenski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Orri og félagar steinlágu fyrir Atletico Madrid Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna „Þurfum að nýta yfirburðina betur“ Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína „Vorum heilt yfir sterkari aðilinn“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Mark tekið af Hákoni í góðum sigri sem kemur Lille á toppinn Brighton valtaði yfir nýliðana Júlíus sem klettur á miðjunni í mikilvægum sigri Þróttarar brutu bikarinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Sjá meira