Guðbjörg: Við vorum miklu kraftmeiri en þær í lok leiksins Óskar Ófeigur Jónsson í Kalmar skrifar 11. júlí 2013 22:13 Mynd/AP
Guðbjörg Gunnarsdóttir fékk tækifærið í marki Íslands í 1-1 jafntefli á móti Noregi í kvöld en Þóra Björg Helgadóttir sat á bekknum. Þóra er ekki alveg búin að ná sér af meiðslunum sem eru að hrjá hana og því var gott fyrir Sigurð Ragnar Eyjólfsson að geta leitað til jafn öflugs markvarðar eins og Guðbjargar. „Það var gríðarlega mikilvægt að ná að jafna leikinn en ég er næstum því eiginlega svekkt að við skyldum ekki náð öllum stigunum í lokin. Auðvitað er eitt stig samt miklu betra en ekkert stig," sagði Guðbjörg. Hún fékk á sig mark á 26. mínútu sem lengi vel leit út fyrir að ætlaði að vera sigurmarkið í leiknum. „Mér fannst ég vera búin að loka öllun vinklinum hennar og ég skil bara ekki hvernig hún náði að pota boltanum framhjá mér og í stöngina og inn. Mér fannst ég loka þessu nógu vel og að hún ætti ekki að getað sett hann framhjá mér. Því miður náði hún að koma boltanum í markið en hún sparkaði í mig og ég veit ekki með hverju hún sparkaði í boltann," sagði Guðbjörg. „Við sýndum frábæran karakter í þessum leik og seinni hálfleikurinn er einn sá besti sem við höfum spilað í mjög langan tíma. Þær sköpuðu mjög lítið á sama tíma og við sköpuðum mjög mikið af færum," sagði Guðbjörg. „Ég ætla að nota tækifærið til að gera aðeins grín af þessarri formumræðu. Við vorum miklu kraftmeiri en þær í lok leiksins og áttum miklu kraftmeiri sóknir en þær. Ég held allavega að við höfum sannað það fyrir sjálfum okkur að við erum í formi," sagði Guðbjörg. Í blálok leiksins fór boltinn af Glódísi Perlu Viggósdóttur og í slána. Sem betur fer fór boltinn "réttu" megin fyrir íslenska liðið. „Ég kallaði að ég ætlaði að taka hann og hún ætlaði að taka hann. Þetta var bara til að gera leikinn skemmtilegri," sagði Guðbjörg í léttum tón. „Það hefði verið hrikalegt að tapa þessu. Eitt stig er kannski sanngjörn niðurstaða. Þær voru sterkari í fyrri hálfleik en við vorum sterkari í þeim seinni," sagði Guðbjörg. „Það var kærkomið að fá loksins tækifærið og fá að sýna sig annarsstaðar en á Algarve eða þannig mótum. Það var mjög skemmtilegt að fá að spila þennan leik og auðvitað vonast ég til að fá að spila meira," sagði Guðbjörg. „Þetta stig gefur okkur sjálfstraust inn í næsta leik en það er ekkert lítið verkefni sem bíður okkar þar. Nú höfum við í það minnsta sannað það fyrir sjálfum okkur að við getum líka spilað góðan sóknarleik og ekki bara varnarleik," sagði Guðbjörg.
Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Lygilegur viðsnúningur Argentínu Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Messi hágrét eftir leik Elías Már sárþjáður og fór af velli Sviss - Kólumbía | Síðasti farseðilinn í átta liða úrslit Lygilegur viðsnúningur Argentínu Portúgalir búnir að finna eftirmann Martínez Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Aftur til Frakklands eftir sneypuför til Chelsea Túfa látinn fara eftir níu töp í síðustu tíu leikjum Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Kvartar yfir álaginu: Messi gæti spilað fimm leiki á sautján dögum Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Martínez hættur með portúgalska landsliðið Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Fótbolti