Spurð út í tíma sinn í Þýskalandi Óskar Ófeigur Jónsson í Växjö skrifar 13. júlí 2013 21:00 Margrét Lára á fundinum í dag. Mynd/ÓskarÓ
Margrét Lára Viðarsdóttir var fulltrúi leikmanna íslenska landsliðsins á blaðamannafundi í kvöld en þá var farið yfir leik Íslands og Þýskalands sem fer fram í Vaxjö á morgun. Nokkrir erlendir blaðamenn voru á fundinum og einn þeirra vildi fá að vita af hverju hlutirnir gengu ekki upp þegar Margrét Lára var í Þýskalandi. Margrét Lára reyndi fyrst fyrir sér í Þýskalandi hjá FCR Duisburg tímabilið 2006-07 en svo aftur hjá Turbine Potsdam árið 2012. Í bæði skiptin stoppaði hún stutt í Þýskalandi og fór aftur til baka, 2007 til Vals en 2012 til Kristianstad í sænsku deildinni. Margrét Lára svaraði þessu ítarlega, talaði um að hún hafi aðeins verið 18 ára í fyrra skiptið og í fyrsta sinn í burtu frá fjölskyldunni sem hafi reynst henni of erfitt. Margrét Lára sagði síðan að meiðslin hafi ráðið því að hún var ekki lengur hjá Potsdam í fyrra. Margrét sagðist hafa verið meidd allan tímann hjá Potsdam og að þjálfarinn Bernd Schröder, sem hún segist bera mikla virðingu fyrir, hafi viljað æfa mikið sem gekk ekki upp á meðan hún var enn að glíma við meiðslin. Margrét Lára sagði að læknarnir í Potsdam hafi ekki vitað hvað væri að angra hana en að hún sjálf hafi viljað aðgerð. Hún hafi ætlað sér að finna lausn á meiðslavandræðum sínum og að aðgerð og fjögurra mánaða hvíld hafi á endanum verið rétta lausnin. Margrét Lára var þá spurð hvort að hún ætlaði að sýna sig og sanna fyrir þýsku liðunum sem sáu hana ekki skila sínu besta þann tíma sem hún var í Þýskalandi. „Ég þarf ekki að sýna neinum neitt. Ég veit hvað ég er góð, liðsfélagarnir vita það og þjálfarinn held ég," sagði Margrét Lára og leit á Sigurður Ragnar sem játti og salurinn hló. „Ég fer ekki inn í leik með þannig hugarfar heldur ætla ég að gera mitt besta í að hjálpa liðinu og vonandi get ég gengið af velli brosandi eins og eftir Noregsleikinn," sagði Margrét Lára.
Mest lesið Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino Fótbolti Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Íslenski boltinn Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Enski boltinn „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Enski boltinn The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Enski boltinn Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Sport Arsenal - Manchester City | Barist um Samfélagsskjöldinn Enski boltinn Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Golf Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Körfubolti Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kolbeinn lagði upp jöfnunarmarkið í ótrúlegu 5-5 jafntefli Hjörtur og Kolbeinn máttu þola stórt tap gegn Degerfors Arsenal - Manchester City | Barist um Samfélagsskjöldinn Brynjólfur skoraði þegar Groningen vann stórsigur Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels Hafrún skoraði í öruggum sigri The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Glódís Perla lyfti bikar í þriðja sinn á árinu 2026 Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Uppgjörið: Þór Ak.-Keflavík 0-2 | Fyrsti útisigur Keflavíkur í 99 daga Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Sara Björk skoraði tvö mörk og loksins sigur Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Hlín opnaði markareikninginn hjá Malmö með tvennu Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Thelma Karen með mark í stórsigri Häcken Fastir í þriðja gír og bitlausir Fullkomin byrjun hjá Emelíu og Köge Ferran Torres gengur til liðs við PSG Þór/KA fær til sín leikmann frá Bandaríkjunum Sjá meira