Fótbolti

Glódís Perla og Harpa inn í byrjunarliðið

Óskar Ófeigur Jónsson í Växjö skrifar
Glódís nýtur mikils stuðnings frá fjölskyldu sinni sem er mætt til Svíþjóðar.
Glódís nýtur mikils stuðnings frá fjölskyldu sinni sem er mætt til Svíþjóðar. Mynd/ÓskarÓ
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, gerði tvær breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn á móti Þýskalandi í Vaxjö í kvöld.

Sif Atladóttir og Fanndís Friðriksdóttir detta báðar úr byrjunarliðinu en í stað þeirra koma Stjörnukonurnar Glódís Perla Viggósdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir.

Sif Atladóttir hefur verið að glíma við meiðsli og spilaði bara í klukkutíma í fyrsta leiknum. Glódís Perla kom þá inn í liðið og hún tekur nú sæti Sifjar í byrjunarliðinu.

Dóra María Lárusdóttir er áfram hægri bakvörður en Rakel Hönnudóttir dettur út á kant eftir að hafa spilað frammi með Margréti Láru í jafnteflinu á móti Noregi.



Byrjunarlið íslenska liðsins:

Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir.

Hægri bakvörður: Dóra María Lárusdóttir.

Miðverðir: Katrín Jónsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir.

Vinstri bakvörður: Hallbera Guðný Gísladóttir.

Hægri kantur: Rakel Hönnudóttir.

Miðjumenn: Sara Björk Gunnarsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir.

Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir.

Framherjar: Margrét Lára Viðarsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir.

Leikurinn verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×