Fótbolti

Guðný fjórði miðjumaðurinn til meiðast eða veikjast

Óskar Ófeigur Jónsson í Vaxjö skrifar
Guðný á æfingunni í gær.
Guðný á æfingunni í gær. Mynd/ÓskarÓ
Það er mikil óvissa í kringum miðjumenn íslenska kvennalandsliðsins fyrir leikinn á móti Hollandi á morgun en þar gætu stelpurnar okkar tryggt sér sæti í átta liða úrslitum keppninnar. Guðný Björk Óðinsdóttir meiddist á æfingu í gær og er fjórði miðjumaður íslenska liðsins til að meiðast eða veikjast á síðustu dögum.

„Við erum búin að missa út fjóra miðjumenn á tveimur dögum og það er rosalega mikið fyrri hópinn okkar. Þetta eru okkar fjórir bestu miðjumenn og ég hef áhyggjur af þeim öllum," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari.

„Katrín Ómarsdóttir er frá í nokkrar vikur. Guðný Óðinsdóttir meiddist á æfingu daginn eftir leik og enn á aftur á hné. Það lítur ekki vel út með hana fyrir þennan leik heldur. Sara (Björk Gunnarsdóttir) og Dagný (Brynjarsdóttir) eru ennþá með einhver einkenni. Dagný er mun betri en við þorðum að vona. Við vonum að það verði í lagi með hana en það getur farið í hvora áttina sem er," sagði Sigurður Ragnar.

„Sama má segja með Söru sem er ennþá með einkenni. Hún fékk magakrampa og það þarf yfirleitt eitthvað mikið til að hún skipti sér útaf í leik. Við vonum að hún nái sér," sagði Sigurður Ragnar.

Guðný Björk Óðinsdóttir fékk sitt fyrsta tækifæri á EM þegar hún kom inn á í seinni hálfleik á móti Þýskalandi. Það er óvist hvort hún geti spilað fleiri mínútur á mótinu.

„Guðný hoppaði upp og lenti illa. Henni fannst hnéð ofréttast. Hún hefur þrisvar slitið krossbönd. Við vonum að þetta sé ekki slitið en henni fannst hún vera svolítið laus í hnénu. Við létum Reyni kíkja á hana og vonum það besta. Það sést ekki betur fyrr en segulómum hvort að þetta sé í lagi. Hún ætlar aðeins að hreyfa sig í kvöld og prófa hvernig henni líður í hnénu. Ég á ekki von á að hún verði leikfær," sagði Sigurður Ragnar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×