Katrín: Spila bara haustleikina ef að það er mikil neyð Óskar Ófeigur Jónsson í Vaxjö skrifar 17. júlí 2013 14:15 „
Þetta er klárlega með þeim stærstu landsleikjum sem ég hef spilað. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur enda erum við komnar í átta liða úrslit með sigri," sagði Katrín. Hún var spurð út í sigurleik á móti Hollandi árið 1994 sem var hennar annar landsleikur. Íslenska kvennalandsliðið komst þá í átta liða úrslit Evrópukeppninnar í fyrsta sinn en þá var úrslitakeppnin aðeins skipuð fjórum liðum. „Það gleymist stundum að tala um þennan árangur því þessar stelpur sem voru í landsliðinu á sínum tíma voru gríðarlega flottar og góðar. Ég get ekki sagt að ég hafi átti mikinn þátt í þessu. Ég kom þarna inn á í mínútu og fannst það ógeðslega gaman. Það voru stelpur í liðinu sem ég leit mikið upp til," sagði Katrín. En er Katrín var fara að spila upp á það að leikurinn á móti Hollandi í dag verði ekki hennar síðasti landsleikur? „Ég er ekki mikið að hugsa um það. Ég ætla að spila með Umea út tímabilið. Mér finnst eðlilegt þegar að það byrjar ný keppni í haust að það séu bara nýir leikmenn sem taki við. Við eigum frábæra leikmenn sem eru að koma inn í þetta hjá okkur," segir Katrín. Hún verður til taks í haustleikjunum en stefnir ekki á að spila. „Ef að það er einhver nauðsyn þá gæti ég spilað leikina í haust. Við eigum flottar stelpur sem geta leyst þessa stöðu vel. Það þyrfti þá að vera í mikilli neyð," segir Katrín. „Það er alltaf eitthvað um meiðsli fyrir svona leiki. Mér finnst við vera með sterkan hóp og það er gríðarlegur vilji í öllum leikmönnum. Ég finn bara rosalega kraft frá öllum í hópnum og við ætlum að fara áfram. Þá verður við að vinna þennan leik," segir Katrín. „Þær eru með pínulítið öðruvísi lið en við en ég vil samt meina að á góðum degi þá getum við vel unnið Holland. Í þessum leik mun þetta snúast um dagsformið og viljann," segir Katrín.
Mest lesið Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Enski boltinn Segir slagsmálin í klefanum hafa verið ofbeldisfull og ofsafenginn Fótbolti Grófu sig undir girðingu og stálu milljónum frá félaginu Fótbolti Magnús Eyjólfsson er látinn Sport Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Körfubolti „Lukkudýrið“ í mál við félagið Körfubolti ÍR-ingar sækja Grikkja á Álftanesið: „Sannkallaðar gleðifréttir“ Körfubolti Stjarnan er meistari meistaranna Handbolti „Djöfull er gaman að vinna loksins aftur“ Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Virtus 2-1 | Blikar bara einu marki yfir Fótbolti Fleiri fréttir Grófu sig undir girðingu og stálu milljónum frá félaginu Segir slagsmálin í klefanum hafa verið ofbeldisfull og ofsafenginn Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn „Vilji, kraftur, ákveðni og hugarfar hjá mínum stelpum“ Arna Eiríksdóttir: „Við töpuðum tveimur stigum í dag“ „Djöfull er gaman að vinna loksins aftur“ Nú fengu Blikabanarnir stóran skell Logi og Albert skoruðu báðir í Evrópu í kvöld Uppgjörið: Breiðablik - Virtus 2-1 | Blikar bara einu marki yfir Uppgjör og vitöl: Stjarnan-FH 2-2 | FH að missa Blikana frá sér Uppgjör: Þór/KA-FHL 4-0 | Norðankonur í stuði á móti botnliðinu Varamaðurinn reddaði málunum fyrir Frey í blálokin Elías Rafn lokaði markinu og Midtjylland í frábærum málum Ný dýrasta knattspyrnukona heims Tottenham beinir sjónum sínum að besta unga leikmanninum Telur X-faktorinn Eze vera púslið sem Arsenal vantaði „Við erum ekki undir neinni pressu“ Horsens vill fá Guðlaug Victor „Hefur ekki tíma til að fara of langt niður“ Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Leeds kaupir Okafor og liðin í ensku úrvalsdeildinni aldrei eytt meiru Fá góðar fréttir fyrir stærsta leik í sögu félagsins „Af hverju er Tómas Orri ekki að að spila í Breiðabliki?“ Leik hætt þegar áhorfendur köstuðu heimatilbúnum sprengjum „Ætla ekki að segja það í þessu viðtali“ Wirtz strax kominn á hættusvæði Martröð á fyrstu æfingu í Róm Ljóst hvenær Liverpool og Man. Utd mætast Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Féll fimm metra við að fagna marki Sjá meira