Erlent

Hamfarir í Oklahoma

Fjölmargir slösuðust í hamförunum og er tjón talið hlaupa á milljónum Bandaríkjadala.
Fjölmargir slösuðust í hamförunum og er tjón talið hlaupa á milljónum Bandaríkjadala. Mynd/AP

Að minnsta kosti einn lést þegar skýstrókar fóru yfir smábæinn Shawnee í Oklahoma í gær. Fjölmargir slösuðust í hamförunum og er tjón talið hlaupa á milljónum Bandaríkjadala.

Auk Oklahoma ollu skýstrókarnir tjóni í ríkjunum Kansas og Iowa. Þá hafa yfirvöld í nærliggjandi ríkjum á borð við Nebraska, Minnesota og Wisconsins varað við skýstrókum og eru íbúar hvattir til að vera á varðbergi.

Nokkuð hefur borið á hvirfilbyljum í Bandaríkjunum síðustu daga. Þannig fórust sex í Texas á fimmtudag þegar skýstrókar gengu yfir bæinn Granbury.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×