Erlent

Giftingar samkynhneigðra til umræðu í breska þinginu

David Cameron hefur hvatt flokksbræður sína sem og þingmenn Verkamannaflokksins að samþykkja frumvarpið.
David Cameron hefur hvatt flokksbræður sína sem og þingmenn Verkamannaflokksins að samþykkja frumvarpið. Mynd/AP

Stjórnarfrumvarp sem felur í lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra verður tekið til umræðu í neðri deild breska þingsins í dag.

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hefur hvatt flokksbræður sína sem og þingmenn Verkamannaflokksins til að samþykkja frumvarpið. Það hefur þó mætt andstöðu meðal þingmanna Íhaldsflokksins og eru líkur á að frumvarpið nái ekki í gegn.

Þingmenn Verkamannaflokksins og Frjálslyndra demókrata eru hlynntir frumvarpinu en munu aðeins greiða atkvæði með því ef breytingartillögu um lögleiðingu staðfestrar sambúðar karls og konur verði bætt við.

Cameron hefur bent á að tillagan komi til með að kosta ríkissjóð fjóra milljarða punda eða um 750 milljarða króna í viðbótarlífeyrisgreiðslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×